Sex leikir voru á dagskrá í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Topplið Real Madrid jók forskot sitt á toppnum í 10 stig þegar að þeir sigruðu Levante á heimavelli. Villareal vann mikilvægan sigur í botnbaráttunni þegar að þeir sigruðu Granada og botnlið Zaragoza vann einnig sigur í dag þegar að þeir mættu Espanyol. Valencia hélt góðu gengi sínu áfram þegar að þeir burstuðu Sporting Gijón, 4-0.
Valencia styrkti stöðu sína í 3. sæti deildarinnar þegar að þeir sigruðu Sporting Gijón á heimavelli í dag. Faghouli skoraði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleiks fyrir Valencia og síðan bættu heimamenn við þremur mörkum, þar af tveimur í uppbótartíma áður en dómarinn flautaði til leiksloka. Lokatölur 4-0. Sporting sitja í næst neðsta sæti deildarinnar með 19. stig en Valencia í því þriðja með 40 stig, 8 stigum á eftir Barcelona sem eru í 2. sæti.
Villareal hafa verið arfaslakir það sem af er vetri en þeim tókst að vinna góðan sigur á Granada í dag. Leiknum lauk 3-1 fyrir heimamenn í Villareal sem að lyftu sér upp í 14. sæti deildarinnar með sigrinum og hafa þar 26 stig. Granada er tveimur sætum neðar og með einu stigi minna en Villareal.
Real Madrid tók á móti liðinu í 4. sæti, Levante, á Santiago Bernabeu í kvöld. Levante skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins nokkrar mínútur en eftir það tóku leikmenn Real Madrid öll völd á vellinum og sóttu án afláts. Þeir skoruðu mark nokkrum mínútum síðar sem var dæmt af vegna rangstöðu. Dómurinn var sennilega rangur en því verður ekki breytt eftir á. Það dró síðan til tíðinda á 44. mínútu. Þá fékk Vincent Iborra að líta sitt annað gula spjald fyrir að handleika boltan innan teigs. Vítaspyrna var réttilega dæmt og Iborra sendur af velli. Ronaldo skoraði af öryggi úr spyrnunni og staðan því 1-1 í hálfleik. Real Madrid nýtti sér liðsmuninn í síðari hálfleik og fór á kostum. Ronaldo skoraði tvívegis með stuttu millibili í upphafi hálfleiksins, síðara markið var af dýrari gerðinni. Þá lék Ronaldo sér með boltann fyrir utan teiginn, stillti sér upp í skot og lét vaða á markið af 23 metra færi. Boltinn söng í netinu og staðan orðin 3-1. Gegn gangi leiksins minnkaði Koné muninn fyrir Levante nokkrum mínútum síðar. Það var síðan Karem Benzema sem að innsiglaði sigur Real Madrid með góðu marki á 66. mínútu. Real Madrid fékk haug af tækifærum til þess að bæta við mörkum en það var bara ekki skrifað í skýin að þessu sinni og sættu þeir sig að lokum við 4-2 sigur. Með þessum sigri auka þeir forskot sitt á toppi deildarinnar í 10 stig en Levante situr í 4. sætinu með 32 stig, 26 stigum færri en Real Madrid.
Valencia 4 – 0 Sporting Gijon
1-0 Sofiane Feghouli 33. mín
2-0 Tomas Botia Alberto (Sjálfsm.) 73. mín
3-0 Goncalves Oliveira Jonas 90. mín
4-0 Goncalves Oliveira Jonas 90. mín
Villarreal 3 – 1 Granada CF
1-0 Marco Ruben 16. mín
1-1 Inigo Lopez 51. mín
2-1 Borja Valero 64. mín
3-1 Julio Cesar (sjálfsm.) 73. mín
Espanyol 0 – 2 Real Zaragoza
0-1 Paulo Da Silva 55. mín
0-2 Juan Carlos 90. mín
Malaga 3 – 1 Mallorca
0-1 Michael Pereira 4. mín
1-1 Sebastian Fernandez 12. mín
2-1 Jeremy Toulalan 55. mín
3-1 Jose Salomon Rondon 70 mín
Rayo Vallecano 2 – 0 Getafe
1-0 Michu 33. mín
2-0 Diego Costa 65. mín
Rautt spjald:Michel (G) 61. mín
Real Madrid 4-2 Levante
0-1 Cabral 5. mín
1-1 Ronaldo 44. mín (VSP)
2-1 Ronaldo 50. mín
3-1 Ronaldo 57. mín
3-2 Kone 63. mín
4-2 Benzema 66. mín
Rautt spjald: Iborra (L) 44. mín



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook