Gareth Barry, leikmaður Manchester City, verður ekki með enska landsliðiðinu í knattspyrnu á Evrópumótinu sem hefst í Póllandi og Úkraínu eftir tíu daga. Barry meiddist í vináttuleik gegn Norðmönnum á laugardag. Phil Jagielka, leikmaður Everton, hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn í stað Barry.
Tilkoma Jagielka gæti haft þau áhrif að Phil Jones, leikmaður Manchester United, verði notaður frekar sem miðjumaður en miðvörður á EM. Tveir leikmenn til viðbótar úr æfingahópi Englendinga fyrir EM eru tæpir vegna meiðsla; Danny Welbeck og Glen Johnson. Reiknað er með að endanleg ákvörðun um þátttöku þeirra verði tekin í kvöld eða fyrramálið, en frestur til að skrá leikmannahópa til leiks rennur einmitt út klukkan tíu í fyrramál.
Enskir geta glaðst yfir því að Scott Parker er á góðum batavegi eftir hásinarmein, hann lék í 55 mínútur gegn Norðmönnum um helgina og komst vel frá sínu.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook