Brasilíski varnarmaðurinn Lucio skrifaði í gær undir tveggja ára samning við ítalska liðið Juventus. Lucio kom á frjálsri sölu til félagsins aðeins nokkrum dögum eftir að annað ítalskt lið, Inter, ákvað að rifta samningi sínum við leikmanninn.
Lucio, sem er 34 ára gamall, var í þrjú ár hjá Inter en þangað kom hann frá Bayern Munchen í Þýskalandi. Talið var að hann væri á leiðinni til Fenerbache í Tyrklandi og því komu þessi félagaskipti eilítið á óvart.
"Ég er ánægður með að vera kominn til Juventus. Þetta er nýr kafli í mínu lífi og ég hlakka til að takast á við nýja áskorun," sagði Lucio á heimasíðu Juventus.
Lucio hefur leikið 105 leiki fyrir brasilíska landsliðið og skorað fjögur mörk.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook