Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Meistaradeild Evrópu | Mourinho segir betra lið kvöldsins hafa tapað

Mynd: Nordic Photos

Jose Mourinho sagði eftir leikinn að betra liðið hafi tapað í kvöld. Hann sagði fljótlega eftir leikinn að sitt lið hafi ekki verið betra liðið á vellinum en hann hafi verið ánægður með sigurinn og að vera komin áfram í Meistaradeildinni í ár.

"Betra liðið tapaði í kvöld, "sagði Mourinho eftir leikinn.

"Þegar ég segi að United hafi verið betra þá er ég ekki að tala um ákvörðunina í rauða spjaldinu. Ég er ekki viss um þann dóm. Burt séð frá þeirri ákvörðun þá tapaði betra liðið í kvöld."