Þriðjudagur, 5. mars 2013 | Fréttir | frettir@sport.is | @sport_is á Twitter

Meistaradeild Evrópu | Dortmund öruggir áfram eftir 3-0 sigur á heimavelli

Mynd: Nordic Photos

Leikur Dortmund og Shakhtar Donetsk var aldrei spennandi en það voru heimamenn sem voru mun betri aðilinn í leiknum. Það tók 31.mínútu að komast yfir en það var Felipe Augusto Santana sem kom heimamönnum yfir í leiknum. Mario Götze var ekki lengi að bæta öðru marki við en hann skoraði á 37.mínútu leiksins og var staða heimamanna ansi væn.

Seinasta mark leiksins kom í seinni hálfleik en það var Jakub Błaszczykowski sem gulltryggði Dortmund öruggan sigur á heimavelli en þýska liðið vann samanlagt 5-2 sigur og er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Dortmund 3-0 Shakhtar Donetsk (2-0) | 5-2 samanlagt
1-0 Augusto 31.mín.
2-0 Götze 37.min.
3-0 Błaszczykowski 59.mín.