Leikur Man.Utd og Real Madrid byrjaði hressilega en áhorfendur klöppuðu álíka mikið í upphafi leiks fyrir týnda syninum Ronaldo eins og hinum gamla Ryan Giggs sem lék sinn 1000 leik fyrir Man.Utd í kvöld. Það var greinilega eitthvað stress í leikmönnum beggja liða í byrjun leiks en eftir að leikmennirnir höfðu hrist það úr sér þá hófust leikar.
Jafnræði var á með liðunum frá upphafi leiks en það voru gestirnir frá Madríd sem sóttu meira en heimamenn. Það dugði Man.Utd að ná markalausu jafntefli en þeir skoruðu jú á útivelli og það mark myndi telja mikið ef ekkert mark yrði skorað í leiknum.
Man.Utd var nálægt því að skora um miðjan hálfleikinn en þá kom skalli að marki eftir hornspyrnu en hann fór í stöngina. Danny Welbeck var í góðu færi stuttu seinna en þá sló markmaður Real Madrid boltann beint útí vítateig eftir skot frá Robin Van Persie en Diego Lopez markmaður varði vel. Undir lok hálfleiksins meiddist Angel di Maria en hann virtist togna aftan á læri og fór hann af velli. Það var ekki minni snillingur sem kom inná en það var Kaka sem mætti til leiks.
Staðan í hálfleik var markalaus eftir skemmtilegan fyrri háflleik.
Það tók ekki langan tíma að fá mark í seinni hálfleik en eftir góða sókn heimamanna þá átti nani fasta sendingu fyrir sem endaði með því að Sergio Ramos setti boltann í eigið mark. Hann var að reyna að koma knettinum í burtu en boltinn fór í vitlausa átt og beint í markið. 1-0 fyrir Man.Utd.
Dómari leiksins ákvað að skrá sig í sögubækurnar fyrir heldur vafasaman dóm en hann rak Nani af velli á 56. mínútu fyrir að sparka að því sem virtist óviljandi í leikmann Real Madrid. Þessi dómur breytti leiknum svo um munaði en leikmenn Real Madrid efldust eftir þetta og hófu stanslausa stórsókn að marki Man.Utd.
Jöfnunarmarkið var alltaf að fara að koma í leiknum en það var Luka Modric sem jafnaði metin með frábæru marki á 66.mínútu en hann þrumaði knettinum fyrir utan vítateig í stöngina og inn. Þetta var eftir gangi leiksins en eftir að dómarinn sendi Nani af velli þá höfðu leikmenn Real Madrid sótt án afláts.
Það liðu ekki nema nokkrar mínútur þangað til Ronaldo var búinn að setja sitt mark á leikinn en hann skoraði á 70. mínútu leiksins en boltinn kom þá fyrir markið og hann skoraði af stuttu færi. Hann fagnaði markinu ekki enda fyrrum leikmaður Man.Utd og fagmaður á velli.
Rooney kom inn á á 70.mínútu en það gerði ekki mikið enda erfitt að skora 2 mörk á 20 mínútum gegn svo sterku liði Real Madrid. Þrátt fyrir ágætar tilraunir undir lok leiksins hjá Man.Utd að jafna metin þá enduðu leikar samt þannig að Real Madrid vann 2-1 sigur á Old Trafford og er liðið komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Það má alltaf spyrja hvað hefði gerst ef dómarinn hefði ekki rekið Nani af velli en það er allavega öruggt að leikurinn hefði ekki breyst eins mikið og raun ber vitni. En það er ekki spurt að því og Real Madrid er komið áfram og þegar upp er staðið er liðið vel að því komið.
Man.Utd 1-2 Real Madrid (0-0) | 2-3 samanlagt
1-0 Sergio Ramos (sjálfsmark) 48.mín.
1-1 Luka Modric 66.mín.
1-2 Cristiano Ronaldo 69.mín.
Rautt spjald. Nani (Man.Utd) 56.mín.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook