Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur tilkynnt að það sé ekki til skoðunar að taka Cuneyt Cakir af dómaralista sambandsins. Cakir hefur legið undir ámæli fyrir að reka Nani, leikmann Man.Utd, af velli í leik liðsins við Real Madrid í gær. Aðrir dómarar hafa stigið fram og sagt rauða spjaldið vera í það minnsta harðan dóm og sumir segja hann hreinlega vitlausan.
UEFA hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að Cakir verði áfram meðal dómara í leikjum á vegum UEFA en það sér ekki neitt að rauða spjaldinu sem hann sýndi Nani í gær.
"Það eru engin vandamál með hann sem dómara. Það eru engin vandamál varðandi brottvísunina en við munum bíða eftir skýrslu frá eftirlitsmanni leiksins og dómaraeftirlitsmanni," sagði starfsmaður UEFA.
Margir hafa farið mikinn um dóminn í gær en þá eru sumir sammála dómaranum í málinu. Það hefur samt einnig vakið athygli að Cakir er fylgjandi Real Madrid og Ronaldo á Twitter en slíkt hlýtur að teljast í það minnsta óþægilegt fyrir dómarann þó það hafi ekkert með störf hans að gera.







Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook