Þrátt fyrir allt þá heldur heimur fótboltans áfram að snúast og fara tveir leikir fram í 16-liða úrslitum meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá tekur Juventus á móti Celtic og Valencia fer í heimsókn til PSG í Frakklandi.
Juventus er vægast sagt í góðri stöðu fyrir leik kvöldsins en þetta ítalska stórlið vann Celtic 3-0 í Skotlandi í fyrri leik liðanna. Celtic þarf því að vinna 4-0 á heimavelli Juventus, sem knattspyrnusérfræðingar telja nánast ógjörning. Þá eru PSG einnig með yfirhöndina gegn Valencia en fyrri leik liðanna, sem fram fór á Spáni, lauk með 2-1 sigri PSG. Hinsvegar verður Zlatan Ibrahimovic í banni í kvöld og munar um minna fyrir Frakkana. 1-0 sigur dugir Valencia ekki því að PSG skoraði 2 mörk á útivelli.
Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.45 og er leikur PSG og Valencia í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.







Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook