Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Meistaradeild Evrópu | Ronaldo þakkar móttökurnar á Old Trafford

Mynd: Nordic Photos

Cristiano Ronaldo skaut Real Madrid áfram í meistaradeild Evrópu í gærkvöld þegar hann skoraði sigurmark Real Madrid gegn Manchester United. Þetta var í fyrsta sinn síðan kappinn fór frá síðarnefnda félaginu sem hann lék á heimavelli þess. Mikið hafði verið ritað og rætt um endurkomu piltsins sem margir telja að hafi blómstrað undir stjórn Sir Alex Ferguson.

Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að móttökurnar sem að Ronaldo fékk hafi verið góðar. Hann fékk dynjandi lófatak frá smekkfullri áhorfendastúku á Old Trafford og hann launaði þeim fyrir það með því að fagna ekki þegar hann skoraði markið umtalaða. Ronaldo hafði þetta að segja við blaðamenn eftir leik: "Mér líður hálf skringilega. Ég er glaður innra með mér að við séum komnir áfram en ég er samt dapur að Manchester United sé dottið úr leik. Móttökurnar hér í kvöld voru stórkostlegar. Ég get ekki lýst með orðum hvernig mér líður" sagði sá portúgalski.