Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Meistaradeildin | Eboue fékk samskonar rautt spjald og Nani gegn United árið 2008

Það er sennilega fátt meira rætt á kaffistofum í dag en rauða spjaldið sem Luis Nani fékk gegn Real Madrid í gærkvöld. Að margra mati er rautt spjald harður dómur en það eru einnig til þeir sem halda fram að spjaldið sé hárrétt. Sama hvað því skiptir þá gróf Sport.is upp þetta gamla myndband, frá árinu 2008, þegar Emmanuel Eboue fékk rautt spjald gegn Manchester United, fyrir svipað brot, þá á Patrice Evra. United vann leikinn 4-0 en staðan var 3-0 þegar brotið átti sér stað.