Miðvikudagur, 6. mars 2013 | Siguróli Sigurðsson | siguroli@sport.is | @sigurolim á Twitter

Meistaradeildin | Nigel de Jong fékk aðeins gult fyrir samskonar brot og Nani | Myndband

Mynd: NordicPhotos

Nigel de Jong, leikmaður hollenska landsliðsins í knattspyrnu, fékk aðeins að líta gult spjald í úrslitum heimsmeistarakeppninnar árið 2010 fyrir svipað brot og Luis Nani fékk rautt spjald fyrir í gær. Þá fer de Jong alltof hátt með sóla sinn í bringu Xabi Alonso, leikmanns spænska landsliðsins. Eins og áður segir fékk de Jong aðeins gult spjald. Spánverjar unnu að endingu leikinn og urðu heimsmeistarar það ár. Myndband af broti de Jong má sjá hér að neðan: