Valsmenn léku sinn síðasta leik í Meistaradeildinn í handbolta þegar ungverska liðið MKB Veszprém komu í heimsókn. Leikurinn var bráðskemmtilegur á að horfa en þó fór svo að gestirnir fóru með sigur af hólmi 24-31. Staðan í hálfleik var 14-14 en Valsmenn léku gríðarlega vel í fyrri hálfleik. Í þeim síðari kom styrkleikamunurinn bersýnilega í ljós og þáttöku Valsmanna lokið í bili í þessari sterku keppni.
Frábær fyrri hálfleikur
Valsmenn byrjuðu leikinn afar vel og skoruðu fyrsta mark leiksins. Mikið jafnræði var á með liðunum og spiluðu Valsmenn skynsaman sóknarleik ásamt því að taka vel á því í vörninni. Það var aðeins eitt að plaga Valsmenn í upphafi leiksins, nýtingin í dauðafærum. Dejan Peric markvörður Veszprém var í miklum ham og var búinn að verja 5 skot á fyrstu fimm mínútunum. Valsmenn jöfnuðu sig þó að því og leiddu meðal annas 5-4 þegar 12 mínútur voru liðnar af leiknum. Svo virtist að Veszprém léku á hálfum hraða en svo var nú aldeilis ekki, Valsmenn leyfðu þeim einfaldlega ekki að spila sinn leik.
Leikmenn Veszprém tóku reyndar smá kipp í stöðunni 5-4 og gerðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 5-8 og tók Óskar Bjarni leikhlé í kjölfarið. Leikhléð svínvirkaði því Valsmenn komust vel inní leikinn aftur og minnkuðu muninn í eitt mark þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Þá tóku gestirnir aftur smá rispu og komust í 8-12. Valsmenn kláruðu fyrri hálfleikinn með stæl og staðan í hálfleik 14-14.
Geturmunurinn kemur í ljós
Gyula Gal gerði fyrsta mark síðari hálfleiks og virtust gestirnir mun ákveðnari heldur en í fyrri hálfleik. Valsmenn voru þó ekki á þeim buxunum að hleypa þeim langt frá sér og staðan eftir 8 mínútur í síðari hálfleik var 16-18. Leikmenn Veszprém héldu þó heimamönnum í þægilegri fjarlægð og skoruðu í hvert sinn þegar þeir þurftu á því að halda. Staðan var 19-22 þegar síðari hálfleikur var hálfnaður og það sem eftir lifði leiks var eign Veszprém. Þeir sigu hægt og bítandi framúr Valsmönnum með stuðningi rúmlega 100 Ungverja sem fjölmenntu á leikinn. Lokatölur voru 24-31 og Meistaradeildar ævintýri Valsmanna úti, allavega í bili.
Valsmenn geta verið stoltir
Valsmenn ganga heldur betur uppréttir eftir þáttöku sína í Meistaradeildinni í vetur. Liðið gat ekki verið óheppnara með riðil því þeir léku í eina riðlinum sem þrjú heimsklassa lið voru í. En liðið kemur til með að græða helling á þessum leikjum og mun eflaust gera liðið enn betra þegar á líður Íslandsmótið. Ólafur Gíslason markvörður Valsmanna var virkilega góður í kvöld, þá átti Baldvin Þorsteinsson góðan leik eftir að hafa verið lengi í gang. Kristján Karlsson leysti Arnór Malmquist af hólmi og gerði það prýðisvel.
Öflugt ungverskt lið
Lið Veszprém er afar vel mannað. Liðið er ungt að árum og er í mótun ennþá. Leikmenn liðsins eru flestir 20-23 ára gamlir og eiga svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Dejan Peric markvörðurinn heimsþekkti stóð vaktina í rammanum og varði mjög vel jafnt og þétt út leikinn. Þá var Zarko Sesum virkilega öflugur og skoraði slatta ásamt að mata liðsfélaga sína með góðum sendingum. Það er skrýtið að hugsa til þess að liðið er líklega úr leik í Meistaradeildinni, liðið kemst aðeins áfram ef Gummersbach sigrar Celje Lasko í Slóveníu og verður það að teljast ansi hæpið.
Óskar Bjarni sáttur
Eftir leikinn var haldinn blaðamannafundur þá sem Óskar Bjarni og Baldvin Þorsteinsson sátu fyrir svörum frá Val og þjálfari Veszprém, Lajos Moscal, ásamt Zarko Sesum. Óskar Bjarni sagði að þessi þáttaka Valsmanna væri virkilega góður skóli fyrir liðið og það myndi vonandi skila sér inn í Íslandsmótið þegar á liði. Hann var reyndar á því að liðið hefði byrjað rólega en vaxið gríðarlega þegar mesti skrekkurinn væri horfinn. Þá sagði Óskar að honum fyndist Veszprém vera sterkasta liðið í riðlinum og getumunurinn hefði bersýnilega komið í ljós í seinni hálfleik. Þá sagðist hann vera stoltur af sínum mönnum fyrir framlag sitt í þessari keppni og vonaðist til að taka þátt að ári.
Vantar stöðugleika
Lajos Moscal þjálfari Veszprém sagði að hann væri mjög sáttur með sigurinn í kvöld. Hann sagði lið sitt frekar stressað í fyrri hálfleik en í þeim síðari lék liðið af eðlilegri getu. Hann sagði að það væri sjáanlegur getumunur á liðunum en hrósaði Valsmönnum fyrir góðan leik. Aðspurður um framhaldið sagði hann að heimaleikirnir gegn Gummersbach og Celje Lasko hefðu verið vonbrigði því liðið gerði jafntefli í þeim báðum.
Vonum það besta
Zarko Sesum leikmaður Veszprém átti góðan leik í kvöld og gerði hann 9 mörk. Hann var sáttur með úrslitin en hann sagði það vera óþægileg tilfinning að hafa örlögin í höndum annara. Fari svo að Gummersbach sigri Celje þá fara leikmenn Veszprém áfram en annars ekki og það væri eitthvað sem hann vildi ekki. Sesum var hrifinn af Valsliðinu og sagði það með marga skemmtilega leikmenn sem spiluðu hraðan og flottann handbolta.
Zarko Sesum 9(12), Marko Vujin 6/3(9/3), Gyula Gal 4(5), Zarko Markovic 3(3), Peter Gulyas 3(4), Carlos Perez 2(3), Ferenc Ilýes 2(9), Tamas Ivansik 1(1), Gergö Ivansik 1(8/1).