Tiger Woods er í dauðafæri á því að vinna sinn 75. sigur á PGA mótaröðinni í golfi. Hann er sem stendur 6 höggum á undan næstu mönnum á móti sem fram fer á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu. Langt er síðan að Tiger Woods vann síðasta mót og yrði sigurinn honum örugglega kærkominn.
Mótið átti upphaflega að klárast í gær en þurfti að hætta leik vegna myrkurs og þoku. Tiger á eftir að leika 11 holur en hann er samtals á 17 undir pari. Næstu menn á eftir eru þeir Nick Watney og Brandt Snedeker á 11 höggum undir pari. Sport.is mun flytja fregnir af úrslitum mótsins um leið og þær berast en mótið ætti að öllu eðlilegu að klárast í kvöld.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook