Eins og Sport.is greindi frá í gær var Tiger Woods með pálmann í höndunum fyrir lokadaginn á PGA mótinu í golfi sem fram fór á Torrey Pines vellinum í Bandaríkjunum. Fresta þurfti lokadeginum sem átti að fara fram á sunnudag vegna veðurs og þá var Woods með sex högga forystu.
Hann kláraði síðan síðustu 11 holurnar sem hann átti eftir í gærkvöld. Þar hélt hann forystunni, eða missti niður tvö högg og kláraði mótið á 14 höggum undir pari. Hann var 4 höggum á undan næsta manni sem var Brandt Snedeker.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook