Miðvikudagur, 10. mars 2010 | Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is

Sveinbjörn í tveggja leikja bann | Vilhjálmur í eins leiks bann

Mynd: Hilmar Þór

Markvörður HK, Sveinbjörn Pétursson, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd Handknattleikssambands Íslands fyrir óíþróttamannslegrar framkomu í leik HK og Stjörnunnar á dögunum.

Vilhjálmur Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, tók víti í leiknum og skaut beint í andlitið á Sveinbirni, sem var ekki par sáttur og réðist að Vilhjálmi. Vilhjálmur baðst afsökunar á athæfinu eftir leikinn.

Sveinbjörn hefur eins og fyrr segir verið dæmdur í tveggja leikja bann og missir hann því af leikjum HK gegn Gróttu og Fram. Vilhjálmur var dæmdur í eins leiks bann.

Magnús Stefánsson, leikmaður Fram, sleppur við leikbann en hann hlaut útilokun fyrir brot í leik Fram og FH í N1-deildinni í síðustu viku. Þar sem um fyrsta brot hans var að ræða fær hann ekki leikbann.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email