Fimmtudagur, 11. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Spænski handboltinn: Markahæstu menn | Staðan

Nú er 20 umferðum lokið í spænska handboltanum en tíu umferðir eru eftir. Það er því tilvalið að fara yfir hvað er að gerast í deildinni. Sport.is fer hér yfir stöðuna í spænsku deildinni og markahæstu leikmenn.

Mynd: Nordic Photos

Evrópu- og Spánarmeistarnir í Ciudad Real eru með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar með 40 stig. Þar á eftir kemur Barcelona í öðru sæti  og Valladolid í því þriðja. Adamer León og Aragón eru í fjórða og fimmta sæti en Reyno de Navarra San Antonio sem áður hét Portland San Antonio er í sjötta sæti.

Það er hinn 26 ára Josep Masachs Gelma sem er markahæstur með 133 mörk í 20 leikjum en hann leikur með liði Octavio. Áður lék hann með Portland San Antonio og Ciudad Real. Christian M. Viana leikmaður San Antonio er næst markahæstur með 119 mörk og Serbinn Alexander Svitlica leikmaður Granolla er þriðji með 116 mörk.

Athygli vekur að aðeins einn leikmaður toppliðanna þriggja kemst á lista yfir markahæstu menn en það er Norðmaðurinn Havard Tvedten hjá Valladolid.

 

Staðan í deildinni                          Markahæstu menn

1. Ciudad Real 40   Josep Masachs Gelma Octavio 20 133
2. Barcelona 35   Cristian M. Viana San Antonio 20 119
3. Valladolid 30   Aleksander Svitlica Granolla 20 116
4. Adamer León 28   Novica Rudovic Octavia 20 113
5. Aragón 24   Carlos R. Pasarín San Antonio 20 105
6. Reyno Navarra 22   Szabolcs Törö Arrete 20 102
7. Naturhouse La Rioja 22   Rafael B. Gonzalez Antequera 20 101
8. Cuenca 17   Davor Cutura Granolla 20 99
9. Antequera 15   Dalibor Cutra Arrete 20 99
10. Granollers 15   Jórge L. P. López Cuenca 20 98
11. Arrate 15   Victor T. Dominguez Alcobendas 20 95
12. Torrevieja 14   Ivan Nikcevic San Antonio 20 94
13. Lábaro Toledo 13   Milos Pesic Alcobendas 20 92
14. Alcobendas 12   Havard Tvedten Valladolid 18 91
15. Octavio Pilotes 11   Borut Oslak Morrazo 18 91
16. Frigorificos Morrazo 5   David C. Sánchez Torrevieja 19 89