Fimmtudagur, 11. mars 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Þýski handboltinn: Jicha með stórleik fyrir Kiel

Þrír leikir fóru fram á miðvikudagskvöldið í þýska handboltanum. Kiel vann mikilvægan sigur á Gummersbach á útivelli 29-22. Liðið er því aðeins einu stigi á eftir toppliði Hamburg og eiga leik til góða. Hamburg lagði einmitt Dag Sigurðsson og félaga í Fusche Berlin af velli naumlega en lokatölur voru 34-32. Í þriðja leiknum fékk Magdeburg lið Dusseldorf í heimsókn og fór með 33-32 sigur af hólmi.

Mynd: Nordic Photos

Gummersbach 22-29 Kiel
Tékkinn Filip Jicha, sem var valinn handboltaleikmaður ársins í Þýskalandi árið 2009, var markashæstur hjá Kiel með þrettán mörk. Sænski línumaðurinn Marcus Ahlm kom næstur með sex mörk. Hjá Gummersbach var Adrian Pfahl atkvæðamestur með fimm mörk.

Markaskorarar Kiel:
Jicha 13, Ahlm 6, Klein 3, Sprenger 3, Aron Pálmarsson 1, Narcisse 1, Anderson 1, Lundström 1.

Markaskorarar Gummersbach:
Pfahl 5, Vukovic 4, Zrinc 4, Schindler 3, Róbert Gunnarsson 2, Szilagyi 2, Krantz 1, Lutzelberger 1.

Hamburg 34-32 Fuchse Berlin
Daninn Hans Lindberg gerði tíu mörk fyrir Hamburg og Pólverjinn Krysztof Lijewski gerði níu. Hjá Berlínarmönnum var Torsten Laen markahæstur með átta mörk. Stórskyttan unga Rúnar Kárason gerði eitt mark fyrir gestina.

Magdeburg 33-32 Dusseldorf
Robert Weber var markahæstur leikmanna Magdeburg með tíu mörk og Hollendingurinn Fabian van Olphen var með átta. Frantisek Sulc skoraði mest fyrir lið Dusseldorf eða tíu mörk en Michael Hegeman gerði níu. Hornamaðurinn knái Sturla Ásgeirsson sem leikur með Dusseldorf gerði fjögur mörk fyrir lið sitt.

  • Facebook
  • Twitter
  • StumbleUpon
  • Digg
  • del.icio.us
  • email