Fjölnir og Afturelding áttust við í Grafarvogi í 1.deild karla í gærkvöldi. Afturelding er í bullandi baráttu um efsta sæti 1.deildar á meðan Fjölnir er við botninn. Skemmst er frá því að segja að gestirnir áttu ekki í neinum vandræðum með lið Fjölnis í leiknum og báru auðveldan sigur úr býtum 19-32.
Einar Örn Hilmarsson var markahæstur heimamanna með fimm mörk. Hafnfirðingurinn Bjarni Aron Þórðarson fór hreinlega á kostum fyrir Aftureldingu og skoraði fjórtán mörk. Næstir komu Jóhann Jóhannson með sex mörk og Eyþór Hilmarsson með fimm.
Afturelding var að leika sinn fyrsta leik undir stjórn nýs þjálfara en Gunnar Andrésson tók við liðinu af Karli Erlingssyni sem var sagt upp á sögunum.
Með sigrinum komst Afturelding á toppinn að minnsta kosti tímabundið en Selfyssingar eru aðeins stigi á eftir og eiga leik til góða. Selfoss fær ÍR í heimsókn næst komandi fimmtudag og getur með sigri endurheimt toppsætið.
Það er til mikils að vinna því það lið sem vinnur deildina kemst sjálfkrafa upp í N1 deildina að ári.











Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook