Föstudagur, 12. mars 2010 | Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is

N1-deild karla: Stjarnan fer norður og mætir Akureyri

Mynd: Hilmar Þór

Einn leikur fer fram í N1-deild karla í dag, en það er leikur Akureyrar og Stjörnunnar. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er leikinn í Höllinni á Akureyri.

Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna. Akureyri situr í fjórða sæti með átján stig, en getur farið upp fyrir FH og HK með sigri og skotist í annað sætið.

Stjarnan er hins vegar í verri málum. Þeir sitja í neðsta sæti deildarinnar með sjö stig, en geta með sigri skotist upp í sjötta sæti deildarinnar.

Liðin mættust einmitt á dögunum þar sem Ragnar Helgason jafnaði metin fyrir Stjörnuna um það bil þegar leiktíminn rann út.

19.00 Akureyri – Stjarnan