Leikmenn kvennaliðs FH í handbolta voru alls ekki sáttir við frammistöðu dómaranna í leik liðsins gegn KA/Þór á Akureyri í dag. KA/Þór fór með sigur af velli en annar dómari leiksins er fyrrum þjálfari liðsins.
FH stúlkur voru orðnar mjög pirraðar með dómgæsluna í leiknum og fengu tvær þeirra rauða spjaldið fyrir að láta reiði sína í ljós undir lok leiksins.
Fyrra spjaldið fékk Berglind Björgvinsdóttir fyrir að kalla áfram KA í átt að öðrum dómaranum á lokamínútunni og nokkrum sekúndum síðar fékk Heiðdís Rún Guðmundsdóttir rauða spjaldið fyrir að beina reiði sinni að saklausum stól sem varð að vegi hennar.
Sigrún Gilsdóttir línumaður FH liðsins var alls ekki sátt:
"Það er auðvitað algjör skandall að annar dómarinn sem dæmir leikinn hafi þjálfað kvennalið KA fyrir nokkrum árum".
"Það má setja spurningamerki við það að hann eigi að vera að dæma leik hjá stelpum sem voru áður undir hans stjórn
Birna Íris Helgadóttir var á sama máli: "Ég hef bara aldrei lent í öðru eins, þeir dæmdu allt á móti okkur".
Guðmundur Karlsson þjálfari kom athugasemd um dómarana til HSÍ fyrir leik. Var hann ekki sáttur við að fyrrum þjálfari KA skildi dæma leikinn.
Dómarinn sem um ræðir er Haddur Stefánsson sem var ráðinn þjálfari kvennaliðs KA/Þór árið 2004 en áður þjálfaði hann yngri flokka KA. Hann er nú að starfa sem þjálfari 5. flokks karla hjá KA og því hafa FH stelpurnar nokkuð til síns máls.
Það verður að teljast ansi hæpið að Haddur hafi átt að dæma þennan leik.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook