Þriðjudagur, 16. mars 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Jóhannes Lange: “Ég var ánægður með varnarleikinn”

Mynd: Hilmar Þór

Jóhannes Lange, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals í N1-deildinni í handknattleik, var að vonum ánægður með uppskeru kvöldsins, en Valsliðið tók stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum með því að leggja Íslandsmeistara Stjörnunnar að velli í Mýrinni í Garðabæ, 27-22.  Þetta var í þriðja sinn á þessari leiktíð sem Valur hefur betur gegn Stjörnunni, en liðin hafa mæst fjórum sinnum.

„Við komum virkilega vel undirbúin til leiks og vissum það að Stjörnuliðið ætti í erfiðleikum að leysa þessa 3+3 vörn okkar sem hefur verið okkar aðalsmerki í veturm,“ sagði Jóhannes í samtali við Sport.is.

„Ég er virkilega ánægður með varnarleikinn hjá okkur í kvöld og við sýndum það að við erum með besta varnarliðið í dag enda erum við með 18 mörk fengin á okkur að meðaltali í vetur“.

„Ég var ánægður með Hildigunni í varnarleiknum í kvöld,“ bætir Jóhannes við.  „Hún sýndi það að hún er einn besti varnarmaður deildarinnar og er virkilega farin að banka á landsliðsdyrnar.“

Valur er í ljómandi góðum málum á toppi N1-deildar kvenna, liðið hefur ekki tapað deildarleik á þessari leiktíð og þarf í rauninni að vanda sig við að kasta deildarmeistaratitlinum frá sér.
„Þetta voru mikilvæg 2 stig í baráttunni um deildarmeistartitilinn,“
sagði Jóhannes, „en það eru ennþá 4 stig eftir í pottinum og þau ætlum við okkur að ná í.“