Fundur aganefndar Handknattleikssambands Íslands fór fram í gærkvöld og dæmdi nefndin þær Berglindi Björgvinsdóttur og Heiðdísi Rún Guðmundsdóttur leikmenn FH í eins leiks bann. Leikmennirnir fengu báðir rautt spjald í leik KA/Þór og FH sem fram fór á laugardaginn.
Aganefndin hafði þetta að segja um spjald Berglindar:
Aganefnd hefur jafnframt móttekið greinagóða lýsingu á atvikinu frá þjálfara FH. Ljóst er að lýsing hans og dómara á atvikinu eru er mjög mismunandi. Aganefnd á ekki annan kost vegna reglugerðar en að nota lýsingu dómara á atvikinu til grundvallar refsingu.
Dómaraval leiksins var mjög umdeilt þar sem annar dómarinn var fyrrum þjálfari kvennaliðs KA/Þórs og núverandi þjálfari yngri flokka KA. Meðal annars var skrifað um það hér á Sport.is. Aganefndin beindi af þeim sökum eftirfarandi tilmælum til dómaranefndar:
Jafnframt beinir hún þeim tilmælum til dómaranefndar að reyna að forðast það að setja dómara á leiki sem tengjast öðruhvoru liðinu of náið.
Ljóst er að það verður mikil blóðtaka fyrir FH liðið að missa þessa leikmenn í bann fyrir leikinn gegn Fylki í Kaplakrika á fimmtudaginn. Sigurvegarinn úr þeim leik mun tryggja sér fimmta sætið í deildinni en Fylkir dugir jafntefli.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook