Engin óvænt úrslit urðu þegar Fylkir fékk HK í heimsókn og Haukar tóku á móti Víkingi í N1-deild kvenna. Fylkir sigraði HK með 28 mörkum gegn 24 og lið Hauka hreinlega valtaði yfir Víking sem hefur ekki enn náð stigi í deildinni í vetur. Lokatölur voru 36-8.
Fylkir er er í fimmta sæti eftir sigurinn en mætir FH í Kaplakrika í lokaleik liðsins í deildarkeppninni næstkomandi Laugardag. Það má reikna með hörkuslag þer sem fimmta sætið er í húfi. Hvorugt liðið á þó möguleika á að komast í úrslitakeppnina.
Víkingur átti aldrei möguleika gegn Haukum og náðu einungis að skora átta mörk í leiknum. Þar af gerði Guðrún Ósk Jónsdóttir fimm mörk. Hin þrjú mörkin gerðu þær Harpa Sif Gísladóttir, Guðný Halldórsdóttir og María Karlsdóttir. Mörk Hauka gerðu Hanna Guðrún Stefánsdóttir10, Erna Þráinsdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 5, Viktoría Valdimarsdóttir 4, Sandra Sigurjónsdóttir 4, Þórdís Helgadóttir 2. Erla Eiríksdóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Tinna Barkardóttir, Karen Helga Sigurjónsdóttir og Gunnhildur Pétursdóttir gerðu eitt mark hver.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook