Laugardagur, 20. mars 2010 | Anton Ingi Leifsson | anton@sport.is

N1-deild kvenna: Verður Valur deildarmeistari?

Mynd: Sport.is

Hart verður barist í N1-deild kvenna í dag, þegar næstsíðasta umferðin fer fram með fjórum leikjum. Topplið Vals fer í Digranesið og getur tryggt sér titilinn.

Eins og fyrr segir getur Valur tryggt sér titilinn með sigri á HK í dag, en HK liðið er næst neðst með fimm stig.

Stórleikur dagsins fer hins vegar fram í Safamýrinni þar sem Stjörnustúlkur koma í heimsókn og mæta Framstúlkum. Fram er í öðru sæti deildarinnar með 37 stig, en Stjarnan sæti neðar með fjórum stigum minna.

KA/Þór og Haukar mætast svo fyrir norðan, en Haukastúlkur geta enn hrifsað þriðja sætið af Stjörnunni.

Að lokum mætast svo FH og Fylkir í baráttunni um fimmta sætið, en liðin eru í fimmta og sjötta sæti deildarinnar.

Leikir dagsins:
16.00 HK – Valur
16.00 Fram – Stjarnan
16.00 KA/Þór – Haukar
16.00 FH – Fylkir