Valur tók á móti Akureyri í Vodafone Höllinni nú í kvöld. En um var að ræða hreinan oddaleik um sæti gegn Haukum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn var kaflaskiptur með eindæmum og eftir jafnan og spennandi leik þar sem grípa þurfti til framlengingar höfðu heimamenn í Val að lokum betur, 30-26 og mæta Haukum í úrslitum.
Gestirnir frá Akureyri byrjuðu leikinn betur í kvöld og gerðu fyrstu tvö mörk leiksins. Heimamenn jöfnuðu þó strax í 2-2 og eftir það var jafnt á næstu tölum en gestirnir voru þó iðulega skrefinu á undan. Valsmenn komust yfir í fyrsta skipti í stöðunni 7-6 og eftir liðlega tuttugu mínútna leik var staðan orðin 12-10 fyrir Val. Akureyringar voru þó ekki slegnir út af laginu og með bættri vörn náði liðið að jafna leikinn í 13-13. Hörður Flóki Ólafsson náði sér ekki á strik í marki gestanna í fyrri hálfleik og þá kom Hafþór Einarsson í markið í hans stað og stóð sig með prýði og varði 4 skot, meðal annars víti. Þar munaði heldur betur um minna fyrir Akureyringa sem komust svo í 15-13. Fannar Þór Friðgeirsson, leikmaður Vals fór meiddur út af velli í fyrri hálfleik með skurð í munnvikum og þurfti að láta sauma spor í leikmanninn. Það var mikið áfall fyrir Valsliðið en Fannar hafði byrjað leikinn vel og gert þrjú mörk. Akureyri var svo með eins marks forystu í hálfleik 15-14. Oddur Grétarsson bar af í liði gestanna í fyrri hálfleik og skoraði 6 mörk en hjá heimamönnum gerði Arnar Þór Gunnarsson 5 mörk.
Jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks. Heimamenn skoruðu fyrstu tvö mörkin en gestirnir svöruðu í sömu mynt. Eftir sjö mínútur var staðan 17-17 og þannig hélt staðan í tæpar þrjár mínútur en þá kom góður kafli hjá heimamönnum þar sem Hlynur Morthens hreinlega lokaði markinu á tímabili og Valur skoraði fjögur af næstu fimm mörkum. Fannar Þór Friðriksson lét meiðsli fyrri hálfleiksins ekki stöðva sig og kom inn á eftir að hafa verið saumaður og skoraði til að mynda tuttugasta mark Vals. Akureyringar voru greinilega ekki búnir að leggja á sig ferðalag suður til þess að fara í sumarfrí og liðið náði að jafna leikinn. Þegar að fimm mínútur voru eftir var staðan hnífjöfn 24-24 og ómögulegt að gera upp á milli liðanna. Valsmenn komust einu marki yfir undir lokinn og virtust hafa sigur en Jónatan Þór Magnússon jafnaði fyrir Akureyri á lokasekúndunni og því þurfti að framlengja.
Fyrri hálfleikur framlengingarinnar var jafn og spennandi. Einungis voru skoruð tvö mörk og bæði voru þau skoruð af Val. Fannar Þór Friðgeirsson sá um að skora mörkin og meiðslin frá því í byrjun leiks greinilega gleymd og grafinn. Hlynur Morthens var hreint stórkostlegur í síðari hálfleik framlengingarinnar og má segja að með markvörslum sínum hafi hann tryggt sigurinn. Fannar Þór Friðgeirsson kórónaði svo leik sinn með því að tryggja Val sigurinn með glæsilegu marki, lokatölur 30-26.
Valur:
Varin skot:
Hlynur Morthens 16
Ingvar Guðmundsson 2
Mörk:
Sigfúll Páll Sigfússon 3
Gunnar Ingi Jóhansson 1
Sigurður Eggertsson 1
Elvar Friðriksson 8
Arnór Þór Gunnarsson 8
Fannar Þór Friðgeirsson 5
Jón Björgvin Pétursson 1
Baldvin Þorsteinsson 1
Orri Freyr Gíslason 1
Akureyri:
Varin skot:
Hörður Flóki Ólafsson 1
Hafþór Einarsson 10
Mörk:
Geir Guðmundsson 1
Hreinn Þór Hauksson 1
Guðmundur Hólmar Helgason 3
Oddur Grétarsson 9
Heimir Örn Árnason 6
Árni Þór Sigtryggsson 2
Jónatan Þór Magnússon 1
Hörður Fannar Sigþórsson 2




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook