Sunnudagur, 15. ágúst 2010 | Fréttir | frettir@sport.is

Sigur á móti Tékklandi

U-18 ára landslið karla vann í dag Tékkland 41-37 í þriðja leik sínum í lokakeppni EM sem fram fer í Svartfjallalandi. Staðan í hálfleik var 21-21.
Það var jafnt á með liðunum fyrstu tíu mínúturnar en á þeim tímapunkti lenti íslenska liðið í töluverðum vandræðum vegna brottvísana sem endaði með einu rauðu spjaldi en þá var eins og íslenska liðið næði að þjappa sig saman og breyttu stöðunni úr 12-15 í 17-17 eftir það var jafnt á öllum tölum og staðan í hálfleik 21-21.  Íslenska liðið var mun betri aðilinn í seinni hálfleiknum og náði mest 8 marka forystu 33-25 en slökuð þó fullmikið á síðustu tíu mínúturnar og endaði leikurinn með góðum sigri íslenska liðsins 41-37.
Mörk Íslands skoruðu:
Guðmundur Helgason 9, Sveinn Sveinsson 8/3, Geir Guðmundsson 7, Pétur Júníusson 6, Magnús Óli Magnússon 4, Arnar Daði Arnarson 2, Leó Pétursson 2/1, Þráinn Jónsson 2, Ísak Rafnsson 1.
Sigurður Ingiberg Ólafsson varði 14 skot en Brynjar Darri Baldursson varði 6 skot.
Geir Guðmundsson var valinn besti maður leiksins.
Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Portugal á þriðjudaginn kl 14:00 að íslenskum tíma.