Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

EM U18 | Ísland lagði Portúgal

Íslenska landsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, vann í dag sigur á Portúgölum, 31-28, í fyrsta leik sínum í milliriðli Evrópumótsins í Svartfjallalandi.  Ísland leikur í milliriðli sem ákvarðar skipan liðanna frá níunda til sextánda sætis eftir að hafa hafnað í þriðja sæti riðlakeppninnar með einn sigur og tvo tapleiki á afrekaskránni.

Jóhannes Lange skrifar frá Svartfjallalandi:

Jafnræði var með liðunum fyrstu 15 mínútur leiksins en eftir það náði íslenska liðið góðum kafla og náði 2 marka forystu sem það hélt út hálfleikinn. Portúgalir byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur og náðu fljótlega 3 marka forystu, 24-21, en þá tók íslenska liðið leikhlé og eftir það var allt annað að sjá til piltanna, sem skoruðu 5 mörk í röð og breyttu stöðunni í 26-24.  Eftir þetta var aldrei spurning um það hvort liðanna færi með sigur af hólmi og náði íslenska liðið mest 5 marka forystu, 31-26, en Portúgalir skoruðu tvö síðustu mörkin og leikurinn endaði því sem fyrr segir 31-28 fyrir Ísland.

Með þessum sigri hefur íslenska liðið náð að tryggja sér sigur í sínum milliriðli og þar með orðið ljóst að liðið fer í krossspil um 9-12. sætið.

Mörk Íslands skoruðu:

Geir Guðmundsson 7, Pétur Júníusson 5, Magnús Óli Magnússon 5, Leó Pétursson 3/2, Guðmundur Helgason 3, Arnar Daði Arnarsson 3, Ísak Rafnsson 2, Víglundur Þórsson 2, Sveinn Sveinsson 1.

Brynjar Darri Baldursson stóð í markinu allan leikinn og varði 15 skot.

Geir Guðmundsson var valinn maður leiksins.