Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Sveinbjörn til Akureyrar

Mynd: Hilmar Þór

Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson er kominn aftur norður og mun hann leika með Akureyri á komandi leiktíð. Sveinbjörn hefur spilað með HK síðustu tvö árin en hann kom einmitt þangað frá Akureyri. Hann verður á lánssamningi hjá Akureyri.

Óvíst er hvort Hörður Flóki Ólafsson og Hafþór Einarsson verði með Akureyri í vetur. Sveinbjörn er 22 ára gamall og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.