Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 | Ritstjórn | ritstjorn@sport.is

EM U18 | Dagbók landsliðspilta

Leikmenn U18-ára landsliðsins í handbolta hafa haldið úti netdagbók frá Svartfjallalandi, en þar er liðið nú statt á Evrópumótinu og hefur tryggt sér sigur í sínum milliriðli.  Eitt og annað drífur á daga drengjanna eins og lesa má í dagbókarfærslu dagsins, sjötta dags EM í Svartfjallalandi.

Það var frídagur í dag en samt sem áður voru við mættir í mat tímanlega eða klukkan 09:45 og klukkutíma seinna voru allir mættir í heitustu höll sem allir hér í hópnum hafa orðið vitni að. En ég sagði samt að það hefðu allir mætt klukkutíma síðar á æfinguna, það er rangt, því línutröllin úr sveitinni, Pétur og Thrainn misstu af rútunni á æfinguna og þurftu þar af leiðandi að taka leigubíl á æfinguna.
Það er nú samt ekkert hundrað í hættunni að taka leigubíl hérna og höfum við strákarnir verið að pæla í því hvernig í andskotanum þessi leigubílar geta verið að vinna við þetta miðað við hvað þetta kostar. Við erum að tala um 1,30 evrur fyrir fimm mínútna rúnt sem er minna en start gjaldið á Íslandi, við sendum lögreglumanninn Heimi í þetta mál þegar við komum heim enda er greinilegt að leigubílarnir heima þurfa ekkert að vera svona dýrir. Jói Lange telur sig samt sem áður vera ódýrasta leigubílstjóran á Íslandi og ódýrari en hér í Svartfjallalandi.

En að æfingunni, hún gekk hægt fyrir sig enda voru menn nær dauða en lífi þarna inni, loks þegar æfingin var hálfnuð gátum við fengið loftræstinguna á gang og þá fóru hlutirnir aðeins að ganga hraðar fyrir sig en samt ekkert á eðlilegum hraða. Þegar allir höfðu drukkið allt vatnið sem við fengum með okkur á æfinguna flautaði Heimir æfinguna af og allir fóru upp á hótel hressilega sveittir að vanda og biðu okkur þar hinar glæsilegustu sturtur sem allir elska hér.

Dularfulla internet málið hans Thrains tók enda eftir æfinguna þegar hann komst að því fullkomlega að Arnar Daði hafði stolið internet kortinu hans í þrjá daga og væri búinn að vera nota það allan tímann. En þetta mál allt saman hefur verið undarlegt frá byrjun enda var Thrainn búinn að týna internet kortinu sínu korteri eftir að hann hafði fengið það og var það hvarf á mjög svo skondin hátt, þar sem þetta kort er eins og hvað annað kort og hverfur ekkert að ástæðulausu. Það tók Thrainn samt sem áður þrjá daga að komast loksins að því hver hafði stolið því þó svo að Arnar Daði væri nú bara í næsta herbergi alsáttur með fría internet tengingu og vil ég (Arnar Daði) þakka Thranni kærlega fyrir afnotið og hefur þetta mál verið leyst nú þegar.

Eftir góðan sturtutíma og mat var tekinn sundsprettur með nýja “leiðsögumanninum” okkar sem talar varla stakt orð í ensku, annað en félagi okkar í Niksic sem er líklega það eina sem við söknum frá Niksic enda algjör fagmaður þar á ferð. Þegar á leiðarenda var komið biðu okkar tvær keppnislaugar, stúka og lítið annað, ekki alveg það sem við bjuggumst við en við létum það ekki aftra okkur og lágum aðalega á sundlaugarbakkanum að sóla okkur. Það eru þó leikmenn í liðinu sem geta ekki setið aðgerðarlausir í meira en sekúndu og þegar allir höfðu náð að ýta hinum og þessum út í laugina endaði einn í liðinu alsnakinn í lauginni.

Eftir að allir höfðu þvoð sér eftir klórmikla laug í Svartfjallalandi hélt nánast allt liðið í mollið nema Bjartur, sem ákvað að nýta sér frítímann í ferðinni og sofa eins og aðra daga. Svenni gerði gæðakaup og fjárfesti í “tappaskóm” eins og einhver hafði að orði og Geir keypti sér gos í fyrsta sinn frá aldamótum. Það er þó staðfest og skjalfest að sms-Stjarnan úr Garðabænum, Víglundur, hafi keypt mest í mollinu og er líklega helmingurinn fyrir kærustuna.

Þessi dagur einkenndist algjörlega af “tjilli”, fundi dagsins var aflýst vegna veðurs…nei ekki alveg, “leiðsögumaðurinn” klikkaði all svaðalega og vorum við ekki komnir með nein video af okkar leik né Portúgals-leiknum og hélt því “tjillið” áfram. Dagurinn endaði ekki vel fyrir Lange því liðið hans sá ekki til sólar gegn Manchester United en leiknum var varpað á 57″ sjónvarpinu í fundarherberginu. Arnar Þorkels hélt upptæknum hætti og tapaði enn og aftur í Kana þjálfaranna.  Það er svolítið athugunarvert við það að Lange er alltaf að atast í Arnari og tala um að hann sé lélegasti spilari í Evrópu en samt er Lange aldrei með, þetta er enn eitt rannsóknarefnið fyrir Heimi þegar hann kemur heim.

Þar sem um hvíldardag var að ræða í dag höfðu ritari og umboðsmaður ritara meiri tíma í að fara yfir kveðjur dagsins og eru þær því fleiri í dag en áður.

Við í liðinu skilum kveðju á Arnar Gunnarsson þjálfara Selfoss sem er alltaf hress á netinu.

Leó Snær skilar kveðju á félaga sinn á X-inu, Valtarann sjálfan, Valtý Björn.

MaggiMix biður fyrir saknaðar kveðjur til golfkylfanna sinna.

Arnar Þorkels skilar kveðju á Olgu í Gróttuheimilinu og biður hana vera með heitt á könnunni þegar hann kemur við í kaffi, þriðjudaginn 24.ágúst.

Andrés sjúkraþjálfari skilar kveðju á sveitta kokkinn á Hotel Onogost og biður hann um að koma til Íslands og verða hans einkakokkur þar, enda voru þeir orðnir bestu mátar undir lok dvalarinnar í Niksic viðbjóðnum.

Svenni og Bjartur biðja síðan að heilsa KötuGrr. og Elmu Dögg í 3.flokki Vals.