Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 | Fréttir | frettir@sport.is

Landslið U18 | Tap fyrir Svartfjallalandi

U-18 ára landslið karla tapaði í dag fyrir Svartfjallalandi 26-23. Staðan í hálfleik var 14-12. Svartfellingar mættu miklu ákveðnari til leiks og náðu 5-1 forystu eftir 10 mínútna leik en þá virtust íslensku strákarnir vakna aðeins og náðu að minnka muninn niður í 1 mark 8-7 en Svartfellingar létu ekki forystuna af hendi og leiddu með 2 mörkum í hálfleik.  Í seinni hálfleik héldu Svartfellingar áfram að leiða með 1-2 mörkum en undir miðjan seinni hálfleik kom góður kafli hjá íslenska liðinu og komst liðið 1 marki yfir 20-19 þegar um 10 mínútur voru eftir en sá kafli dugði ekki til og var því tap staðreynd.

Það var ljóst fyrir leikinn að Ísland hafði unnið sinn milliriðil og spilar því í krossspili um 9-12 sæti.
Mörk Íslands: Geir Guðmundsson 6, Ísak Rafnsson 5, Arnar Birkir Hálfdánarson 4, Magnús Óli Magnússon 3, Guðmundur Hólmar Helgason 2, Víglundur Þórsson 1, Arnar Benedikt Arnarson 1, Leó Snær Pétursson 1.

Sigurður Ingiberg Ólafsson stóð vaktina í markinu og varði 11 skot.
Geir Guðmundsson var valinn maður leiksins.

Næsti leikur liðsins er á föstudaginn kl 18:00 að íslenskum tíma gegn Póllandi.