Þriðjudagur: Það var enginn frídagur í dag hjá okkur strákunum í Podgorcia, heldur beið okkar fyrsti leikur í milliriðlinum og það gegn Portúgal. Menn voru vel tímasettir í morgunmatinn og voru allir mættir á réttum tíma 09.30 eftir stuttan morgunverðartíma var síðan haldið niður í fundarherbergi þar sem við fórum yfir andstæðinga dagsins.
Þegar allir höfðu gert sér grein fyrir andstæðingunum var frí til hádegis og það nýttu menn sér aðallega í frí, eða allavegana ritarinn. Við pöstuðum okkur svo upp í matnum og síðan var haldið til Niksic, það var alveg ágætlega heitt í rútunni en við lifðum hana þó allavegana af og virðist sem að Arnar Birki ætli að lifa þessa ferð af, ótrúlegt en satt.
Rúnar “rauði” tók út leikbann í dag og sat þar af leiðandi upp í stúku á meðan við hituðum upp en Heimir hefur haft það sem reglu að allir 16 leikmennirnir hita upp þrátt fyrir að vera ekki í hóp og hefur þetta reynst vel hjá hinum unga og efnilega þjálfara okkar. Leikurinn byrjaði frekar þönglamalega en við höfðum þó alltaf ástæða til að vera bjartsýnir enda vissum við allan tímann að við værum betra liðið á vellinum. Ritarinn sjálfur, forsetinn, Arnar Daði varð fyrir því óláni að detta úr lið á vinstri öxlinni 20 sekúndum fyrir hálfleik og var ekkert meira með í leiknum. Þegar inn í klefa var komið datt hann síðan aftur úr lið og var nýliðinn, Brynjar Darri nærri uppkasti en brosi þegar hann sá það.
Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki eins vel og við vildum og ætluðum og var tveggja marka forskot okkar í hálfleik fljótlega farið út í buskann og voru Portúgalarnir komnir yfir snemma í seinni hálfleik. Í stöðunni 24-21 fyrir Portúgal sýndum við svo loks úr hverju við erum gerðir og breyttum stöðunni í 31-26. Þeir skoruðu svo síðustu tvö og þriggja marka sigur því staðreynd og við búnir að sigra milliriðilinn.
Þegar menn höfðu tekið því rólega inn í klefa eftir leik og þvoð hvorn annan var farið og horft á Svissnesku félaga okkar spila gegn Spáni og vorum við með Dólgslæti í stúkunni eins og okkur einum er lagið. Við hurfum svo á brott í hálfleik og áleiðis til Podgorcia. Þar tók við matur eins og alltaf og svo endalaus fríðindi á hótelherbergjum okkar og svo svefn.
kveðjurnar eru einhverjar í dag,
Pedo sendir kveðju á Steinda Jr. félaga sinn úr Mosó
Guðmundur Hólmar sendir kveðju á Mávinn okkar, Agnar Smára.
Lange sendir kveðju á stelpurnar sínar í Valsliðinu og bíður spenntur eftir að mæta á æfingar hjá uppáhalds stelpunum sínum.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook