Þýskalands og Evrópumeistar Kiel mættu dönsku meisturunum í Aab og Lemgo sem er Evrópumeistari félagsliða í æfingamóti um helgina.
Leikið var á heimavelli Kiel og hafði liðið sigur úr býtum í báðum leikjum sínum. Liðið sigraði Aab 25-17 Þar sem Filip Jicha var markahæstur með sex mörk þar af þrjú úr vítum. Tobias Reichman og Aron Pálmarsson komu næstir með fimm mörk. Norðmaðurinn Kristian Kjelling var markahæstur Aab með sex mörk en Ingimundur Ingimundarson komst ekki á blað.
Fyrrum Íslendingaliðið Lemgo hafði svo betur gegn Aab í næsta leik 28-22. Vignir Svavarsson og Logi Geirsson léku með liðinu á síðustu leiktíð en hafa báðir yfirgefið það. Glandorf og Smoler voru markahæstir Lemgo með sjö mörk hvor en Kjelling, Christiansen og Toft gerðu fjögur mörk hver fyrir Danina.
Í úrslitaleiknum fóru Kielverjar svo létt með Lemgo og sigruðu 27-14 fyrir framan 8000 áhorfendur. Lundström, Zeitz og Jicha skoruðu fjögur mörk hver og var sá síðastnefndi valinn besti leikmaður mótsins. Aron skoraði tvö mörk í leiknum en Glandorf var atkvæðamestur í liði gestanna með fimm mörk.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook