Markvörðurinn Stefán Guðnason frá Akureyri hefur dregið fram skóna á ný og æfir með félaginu. Stefán er 26 ára en hann lék upp alla yngri flokkana hjá KA og meistaraflokki frá 2002-2006. Stefán var meðal annars tvöfaldur bikameistari með KA 2004, bæði með meistaraflokki og með 2.flokki. Stefán lék með unglingalandsliðum. Fyrsta tímabil Akureyrar Handboltafélags var Stefán lánaður til Hattar á Egilsstöðum.
Stefán lenti í slæmum meiðslum fyrir nokkrum árum sem hann er loksins búinn að fá sig góðan af því. Á meðan meiðslin hafa staðið yfir hefur Stefán ekki verið aðgerðalaus heldur einbeitt sér að þjálfun m.a. þjálfað kvennalið KA/Þórs undafarin ár.
Fjórir nýjir leikmenn eru mættir til leiks á Akureyri fyrir komandi tímabil en þeir eru Bjarni Fritzon, Daníel Einarsson og markverðirnir Sveinbjörn Pétursson og Stefán Guðnason.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook