Sunnudagur, 22. ágúst 2010 | Fréttir | frettir@sport.is

Handbolti U18 | Tap gegn Tékklandi

Íslenska liðið

U-18 ára landslið karla tapaði nú í kvöld fyrir Tékklandi 32-30 í leik um 11-12.sætið á lokakeppni EM. Staðan í hálfleik var 18-13 fyrir Tékklandi.

Fyrri hálfleikurinn var vægast sagt lélegur hjá íslenska liðinu þar sem Tékkar voru betri á öllum sviðum og náðu mjög fljótt 5 marka forystu sem þeir héldu út hálfleikinn.  Það var allt annað að sjá til íslenska liðsins í seinni hálfleik og þá sýndu strákarnir að mikinn karakter með því að ná að vinna upp þetta forskot og þegar um 30 sekúndur voru eftir af leiknum var staðan 31-30 en því miður náði íslenska liðið ekki ná boltanum í þessari síðustu sókn Tékkanna og skorðuðu þeir því síðasta mark leiksins.

Íslenska liðið endaði því í 12.sæti.

Mörk Íslands skoruðu:
Geir Guðmundsson 10, Rúnar Kristmannsson 5, Guðmundur Helgason 4, Pétur Júníusson 4, Leó Pétursson 4, Ísak Rafnsson 2 og Víglundur Þórsson 1.

Brynjar Darri Baldursson stóð vaktina í markinu og varði 16 skot.

Geir Guðmundsson var valinn maður leiksins.