Bikarmeistarar Hamburg lögðu Þýskalandsmeistarana í Kiel í leik liðanna um ofurbikarinn svokallaða í þýska handboltanum í dag. Leikurinn fór fram í München og voru rúmlega 8000 manns í höllinni.
Leikurinn var jafn framan af og en lið Hamburg var yfir hálfleik 13-11. Liðið hélt forystunni í síðari hálfleik og var staðan 26-21 þegar sjö mínútur lifðu leiks. Við tók góður kafli hjá Kiel og skoraði liðið fjögur mörk í röð. Lokamínúturnar voru svo æsispennandi en Hamburg hafði að lokum betur 27-26.
Danski hornamaðurinn Hans Óttar Lindberg fór á kostum í sigurliðinu og gerði níu mörk þar af fjögur úr vítum.
Mörk Hamburg:
Lindberg 9 (4), Vori 4, Hens 3, B. Gille 3, Kraus 2, Lackovic 2, Flohr 2, G. Gille 1, Lijewski 1.
Mörk Kiel:
Jicha 7 (4), Zeitz 6, Reichmann 5, Aron Pálmarsson 3, Ilic 2, Klein 1, Lundström 1,Ahlm 1.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook