Miðvikudagur, 25. ágúst 2010 | Þorsteinn Haukur Harðarson | thorsteinn@sport.is

Rhein-Neckar Löwen sigraði Kadetten

Mynd: Nordic Photos

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen frá Þýskalandi lagði í gær Björgvin Pál Gústavsson og félaga í Kadetten í seinasta æfingaleik sínum fyrir þýska tímabilið. Lokatölur urðu 30-25.

Róbert Gunnarsson fer vel í gang með Löwen og skoraði 4 mörk í gær og þá skoraði Ólafur Stefánsson eitt mark. Guðjón Valur, sem er fyrirliði liðsins lék ekki með vegna meiðsla.

Pólverjinn Karol Bielcki, sem blindaðist nýverið á öðru auganu lék með þýska liðinu í gær og skoraði fjögur mörk.

Hjá Kadetten stóð Björgvin á milli stanganna í 40 mínútur.