Í dag spilaði TV Emsdetten sinn fyrsta leik í þýsku 2.deildinni í Þýskalandi en Patrekur Jóhannesson tók að sér þjálfun liðsins í núna í sumar en með liðinu spila Fannar Þór Friðgeirsson og Hreiðar Levý Guðmundsson.
TV Emsdetten sótti HC Aschersleben heim en með því liði leikur hinn góðkunni Dimitri Filippov sem lék á árum áður með Stjörnunni. HC Aschersleben byrjuðu þennan leik mun betur og voru fljótlega komnir með 4 marka forystu en um miðjan fyrri hálfleik jöfnuðu TV Emsdetten leikinn og höfðu f0rystu í hálfleik 12-16. Fannar og félagar komu miklu ákveðnari til leik í þeim síðari og náðu mest 10 marka forystu 20-30 en leikurinn endaði svo með sigri TV Emsdetten 22-34.
Fannar Friðgeirsson átti mjög góðan leik og skoraði 7 mörk og Hreiðar varði 19 skot þar af 3 víti.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook