Laugardagur, 28. ágúst 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Þýski handboltinn farinn af stað | Umfjöllun um liðin

Mynd: Nordic Photos

Þýski handboltinn er nú hafinn og reikna flestir með mjög skemmtilegri og spennandi leiktíð. Ótrúlegur fjöldi Íslendinga eru á ferðinni í deildinni en fimmtán leikmenn leika með félögunum átján. Að auki stjórna íslenskir þjálfarar þremur liðum.

Þjálfarar þýsku deildarinnar spá Kiel undir stjórn Alfreðs Gíslasonar titlinum en liðið er Evrópu- og Þýskalandsmeistari. Hamburg er einnig talið líklegt til árangurs en liðið lagði Kiel á dögunum í leiknum um ofurbikarinn. Milljónalið Rhein Neckar Löwen hefur einnig að skipa frábærum mannskap en alvarleg meiðsli þeirra besta manns Pólverjans Karol Belecki setja væntanlega strik í reikninginn hjá liðinu. Hann er nú blindur á öðru auga eftir samstuð í leik á síðustu leiktíð.

Flensburg gæti einnig blandað sér í baráttuna og lið eins og Lemgo, Gummersbach og Göppingen verða líklega einnig í efri hlutanum.

Hér verður farið yfir liðin í deildinni og bent á lykilleikmenn ásamt Íslendingunum sem leika með liðunum:

Mynd: Nordic Photos

Kiel
Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins en lykilmaður en án efa Tékkinn Filip Jicha sem valinn var besti leikmaður þýsku deildarinnar í fyrra. Aron Pálmarsson leikur einnig með liðinu og spilar væntanlega stóra rullu í vetur þar sem Daniel Narcisse meiddist alvarlega á dögunum og óvíst hvort hann muni leika eitthvað með á leiktíðinni.

Hamburg
Liðið er líkt og Kiel geysisterkt en þeirra lykilmaður er klárlega danski hornamaðurinn Hans Óttar Lindberg sem var lang markahæsti leikmaður deildarinnar í fyrra.

Rhein Neckar Löwen
Guðmundur Guðmundsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá liðinu sem er í eigu Sören Rasmussen danska milljarðamæringsins. Lykilmaður liðsins er pólski markvörðurinn Slawomir Szmal sem nýlega var valinn besti handboltamaður heims. Ólafur Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðsson eru sem fyrr einir af sterkustu mönnum liðsins og við hópinn hefur bæst línumaðurinn geðþekki Róbert Gunnarsson.

Mynd: Nordic Photos

Flensburg
Oscar Carlén er aðeins 22 ára og hefur leikið tvö tímabil í deildinni. Hann er eitt helsta efni Svía og er sonur hins mikla Per Carlén sem er þjálfari liðsins. Leikmaðurinn ungi byrjaði tímabilið vel og skoraði átta mörk í sigri á Wetzlar.

Göppingen
Liðið gerði góða hluti á síðustu leiktíð og endaði í sjötta sæti. Lykilmenn liðsins eru vinstri skyttan Lars Kaufman og hægri hornamaðurinn Christian Schön.

Gummersbach
Króatinn Vedran Zrnic er klárlega lykilmaður liðsins eftir að Róbert Gunnarsson fyrirliðinn fór til Löwen í sumar. Það verður spennandi að sjá hvernig Frakkinn Igor Anic muni standa sig á línunni en hann kom frá Kiel til að fylla skarðið sem Róbert lét eftir sig.

Lemgo
Liðið hefur misst marga leikmenn vegna fjárhagsvandræða en hefðin er rík í klúbbnum sem varð Evrópumeistari félagsliða á síðustu leiktíð. Gamla brýnið Florian Kehrmann er enn á mála hjá liðinu og er mikilvægt að hann eigi gott tímabil ef Lemgo á ekki að vera í vondum málum.

Mynd: NordicPhotos

Grosswallstadt
Með liðinu leikur varnartröllið Sverre Jakobsson.

Füsche Berlin
Dagur Sigurðsson þjálfar liðið en Rúnar Kárason og Alexander Pettersson leika með því. Alexander kom nú í sumar frá Flensburg og verður væntanlega lykilmaður liðsins ásamt Sven-Sören Chrisophersen sem kom frá Wetzlar.

Lübbecke
Þórir Ólafsson lék glimrandi vel með liðinu á síðustu leiktíð en glímdi við erfið meiðsl á köflum. Hann er með betri mönnum liðsins.

Magdeburg
Enginn Íslendingur leikur með þessu austur þýska félagi sem olli vonbrigðum í fyrra með því að ná aðeins 11. sæti.

Melsungen
Enginn Íslendingur leikur með liðinu.

Wetzlar
Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson gekk til liðs við félagið í sumar og lék sinn fyrsta leik í deildinni gegn Flensburg og skoraði eitt mark.

Mynd: NordicPhotos

Hannover-Burgdorf
Aron Kristjánson þeytir frumraun sína sem þjálfari í þýsku deildinni er hann stjórnar liðinu. Hann hefur fengið þá Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vigni Svavarsson til liðsins en fyrir var Hannes Jón Jónsson. Þeir munu vera í lykilhlutverkum og fékk sá síðastnefndi til að mynda fyrirliðabandið nú á dögunum.

Balingen
Enginn Íslendingur leikur með liðinu.

Rheinland
Liðið breytti um nafn í sumar en var áður Dormagen. Tveir Íslendingar gengu til liðs við það eftir síðustu leiktíð þeir Árni Þór Sigtryggsson og Sigurbergur Sveinsson.

Hamm
Einar Hólmgeirsson fór vel af stað með liði Hamm og skoraði fjögur mörk í fyrsta leik liðsins sem var gegn Grosswallstadt.

Friesenheim
Enginn Íslendingur leikur með liðinu.