Sunnudagur, 29. ágúst 2010 | Guðjón Örn Helgason | gudjon@sport.is

Kiel byrjar mest sannfærandi í þýsku deildinni

Mynd: Nordic Photos

Meistarar Kiel tóku nýliða Friesenheim í kennslustund þegar liðin mættust í Sparikassanum heimavelli Kielverja. Lokatölur voru 37-19 en þeir Christian Zeitz og Momir Ilic fengu skotleyfi og réðu varnarmenn gestanna ekkert við þessar miku skyttur. Zeitz gerði tíu mörk og Ilic sjö. Serbinn Milutin Dragicevic sem gekk til liðs við Kiel í sumar skoraði fimm mörk. Aron Pálmarsson lék í liði Kiel og skoraði eitt mark. Markahæstur gestanna var Alexander Becker með fjögur mörk.

Hamburg fór ekki eins vel af stað í deildinni en liðið tapaði fyrir Göppingen á útivelli 30-32. Hans Lindberg var sem fyrr markahæstur í liði Hamburg en hann gerði sjö mörk. Dragos Oprea var atkvæðamestur heimamanna með átta mörk.

Rhein Neckar Löwen rétt marði Balingen á útivelli 30-31. Pólverjinn Grzegorz Tkaczyk var markahæstur Ljónanna með átta mörk og Bjarte Myrhol kom næstur með sjö. Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk en Róbert Gunnarsson komst ekki á blað. Guðjón Valur Sigurðsson er sem fyrr frá vegna meiðsla. Benjamin Herth var atkvæðamestu hjá Balingen með sjö mörk.

Mynd: Nordic Photos

Flensburg fór einnig brösulega af stað því liðið vann Kára Kristjánsson og félaga í Wetzlar aðeins með einu marki 28-29. Oscar Carlén skoraði átta mörk fyrir gestina. Kevin Schmidt var markahæstur heimamanna með átta mörk en þar af voru sex úr vítum. Kári skoraði eitt mark.

Sannkallaður Íslendingaslagur var þegar Dagur Sigurðsson fór með menn sína í Füsche Berlin í heimsókn til Hannover-Burgdorf sem er undir stjórn Arons Kristjánssonar. Dagur og félagar höfðu betur 18-26. Alexander Pettersson fór á kostum í leiknum og skoraði átta mörk fyrir gestina og Rúnar Kárason gerði eitt. Atkvæðamestir hjá heimamönnum voru Morten Olsen og Aivis Jurdzs með fjögur mörk hvor. Ágeir Örn Hallgrímsson gerði þrjú mörk og Vignir Svavarsson og Hannes Jón Jónsson eitt mark hvor.

Þá tapaði Hamm heima fyrir Grosswallstadt 29-32 og skoraði Einar Hólmgeirsson fjögur mörk fyrir Hamm. Sverre Jakobsson komst ekki á blað hjá gestunum.

Lemgo tapaði svo fyrir Gummersbach í síðasta leik helgarinnar, 30-31. Igor Anic var markahæstur gestanna með níu mörk.