Íslendingaliðið Rhein -Neckar Löwen sigraði Göppingen 28-26 í þýsku fyrstu deildinni í handknattleik í kvöld.
Landsliðmennirnir okkar, Ólafur Stefánsson og Róbert Gunnarsson voru rólegir í markaskorun í kvöld, Ólafur skoraði eitt mark í leiknum en Róbert komst aldrei þessu vant ekki á blað.
Guðjón Valur Sigurðsson er enn frá keppni vegna hnémeiðsla, en vonandi kemst hann fljótt af stað á ný.
Markahæstur Löwen manna í kvöld var Karol Bielecki, hálfblindur, og skoraði hann ellefu mörk. Löwen liðið byrjar tímabilið vel, búið að vinna tvo upphafsleiki sína í deildinni.




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook