Hinn 22 ára gamli Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur snúið aftur í Digranesið eftir að hafa dvalið út í Þýskalandi í eitt ár.
Ólafur Bjarki er uppalinn HK-ingur en fór í fyrra til Þýskalands þar sem hann spilaði með ASG Ahlen síðasta tímabil. ASG Ahlen spilar í 2.deildinni í Þýskalandi. Ólafur ákvað að snúa aftur heim í sumar og skirfaði í gær undir samning við HK.
Ólafur Bjarki er einn efnilegasti handknattleiksmaður landsins og hefur leikið í öllum yngri landsliðum Íslands. Svissneskt félag sýndi honum einnig áhuga á sínum tíma.
Þetta er mikill styrkur fyrir lið HK fyrir átökin í N1 deildinni í vetur en Ólafur var einn besti miðjumaður deildarinnar áður en hann fór til Þýskalands.
Ólafur Bjarki spilaði sinn fyrsta leik með HK gegn FH í kvöld á Ragnarmótinu, sem er æfingamót á Selfossi, þar sem hann skoraði 5 mörk. Leikurinn fór 35-32 fyrir HK í mjög jöfnum leik.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook