Miðvikudagur, 1. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Ragnarsmótið | Haukar og HK sigruðu

Mynd: Hilmar Þór

Tveir leikir fóru fram á Ragnarsmótinu í handknattleik karla á Selfossi í kvöld. Íslands-og bikarmeistarar Hauka unnu afar sannfærandi sigur á Fram, 31-24, eftir að hafa verið yfir allan leikinn. HK sigruðu FH í fyrri leiknum í dag, 34-32. Sá leikur var jafn allan leikinn en HK hafði betur í lokin.

Á morgun mætast HK og Selfoss kl. 18:30 og Haukar og Valur kl. 20. Leikirnir fara allir fram í íþróttahúsinu Vallaskóla á Selfossi.Aðgangur er ókeypis og hægt er að fylgjast með leikjum mótsins á Sporttv.is

Ragnarsmótið var á sínum tíma ásamt Sjallamótinu á Akureyri fastur punktur í undirbúningi liðanna. Þetta er í 21.sinn sem mótið er haldið til minningar um Ragnar Hjálmtýsson sem lést í bílslysi 1988. Sex lið taka þátt á mótinu.