Fimmtudagur, 2. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

12 leikmenn skrifuðu undir samninga við Gróttu

Mynd: Grótta

Í fyrradag gerði Grótta samning við 12 leikmenn meistaraflokks kvenna í handknattleik. Samningarnir eru allir til tveggja ára. 11 af þessum 12 leikmönnum eru uppaldir hjá Gróttu. Þetta er hugsað til þess að byggja upp á þessum ungu stelpum til framtíðar. Margar af þessum leikmönnum hafa nokkurra ára reynslu í meistaraflokki, þrátt fyrir ungan aldur. Hjá meistaraflokki Gróttu er nýr þjálfari, Ómar Örn Jónasson og er hann með það markmið að koma meistaraflokki kvenna í fast sæti í efstu deild. Grótta spilar á ný í N1-deild kvenna eftir eins árs veru í 1.deildinni.

Þær stelpur sem skrifuðu undir samninga eru:
Auður Ólafsdóttir
Ásrún Lilja Birgisdóttir
Elísabet Þórunn Guðnadóttir
Guðný Halldórsdóttir
Helga Rún Hlöðversdóttir
Helga Þórunn Óttarsdóttir
Hildur Marín Andrésdóttir
Hlíf Ágústa Reynisdóttir
Katrín Viðarsdóttir
Rebekka Guðmundsdóttir
Steinunn Kristín Jóhannsdóttir
Tinna Laxdal