Föstudagur, 3. september 2010 | Gestur Einarsson | gestur@sport.is

Björgvin Páll Gústavsson | Stefni á að verða einn af 5 bestu markmönnum heims

Mynd: Sport.is

Björgvin Páll Gústavsson, aðalmarkvörður íslenska landsliðsins í handknattleik, hefur í dag keppnistímabilið með liði sínu Kadatten Schaffhausen í svissnesku deildinni. Björgvin Páll er 25 ára menntaður bakari en hann ákvað að leggja hveitið til hliðar til að stunda handknattleik af krafti. Björgvin spilaði með Fram áður en hann fór út í atvinnumennsku, hann fór þaðan til Bittenfeld í Þýskalandi og spilaði þar eitt tímabil. Eftir það fór hann til Sviss í félag sem heitir Kadatten Schaffhausen og spilar hann þar í dag. Björgvin vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum 2008 í Peking með íslenska landsliðinu og til bronsverðlauna á Evrópumótinu í Austurríki 2010. Björgvin Páll átti frábært  tímabil í Sviss á seinustu leiktíð en lið hans, Kadatten Schaffhausen, varð meistari í Sviss og fór alla leið í úrslit í Evrópubikarnum.

Sport.is náði tali af kappanum þar sem hann talar um markmið liðsins, sín eigin markmið og hvernig líf hans er sem atvinnumaður í svissnesku deildinni. Lið hans stefnir að því að vinna alla þrjá titlana heima fyrir og komast upp úr riðlinum í Meistaradeildinni, einnig stefnir hann sjálfur að því að verða einn af 5 bestu markmönnum heims, það eru ekki lítil markmið.

Hvernig er venjulegur dagur hjá þér í Sviss?
“Hann er nokkuð þétt pakkaður svona yfirleitt. 2 æfingar, brasað í fyrirtækjarekstri milli æfinga, mikið borðað og svo fara kvöldin yfirleitt í slökun.“

Nú hafa margir spurt, af hverju Björgvin Páll velji að spila handbolta í Sviss frekar en Þýskalandi?
“Helsta ástæðan fyrir því ég er í Sviss er vegna þess að þetta er mjög gott lið og ég fæ mikinn spilatíma. Það mikilvægasta að mínu mati er að ég spili sem mest og verði þannig betri. Maður verður lítið betri á því að sitja á bekknum, 50% af tímabilinu, meðan maður er svona ungur. Eins og ég sagði áður þá er þetta einnig frábært lið og það að berjast um titla á hverju ári er líka hrikalega skemmtilegt. Einnig erum við í Evrópukeppni á hverju ári og þar spilum við við þá bestu og hingað til höfum við sýnt hversu öflugir við erum. Planið er reyndar að fara yfir til Þýskalands og gæti það jafnvel gerst strax á næsta ári.“

Hvernig er undirbúningstímabilið búið að vera hjá ykkur?
“Það er búið að ganga mjög vel og allt á plani. Unnum lið á borð við Hamburg, Celje Lasko og Grosswallstadt sem gefur liðinu auðvitað aukið sjálfstraust. En æfingaleikir eru æfingaleikir og það mikilvægasta er að það er búinn að vera stígandi í þessu hjá okkur og virðumst við vera klárir í tímabilið.“

Mynd: NordicPhotos

Núna ertu svissneskur meistari með liði þínu Kadatten Schaffhausen, á að toppa það eitthvað?
“Seinasta tímabil var frábært. Við unnum deildina með miklum yfirburðum, þar sem við settum nýtt met og síðan fórum við í úrslit í EHF Cup sem er talinn besti árangur sem að svissneskt lið hefur náð á alþjóðavettvangi og má segja að við höfum komið svissneskum handbolta á kortið með því að slá lið eins og Flensburg og Göppingen út úr keppninni. Planið er alltaf að gera betur en seinast og markmið liðsins fyrir þetta tímabil eru skýr en þau eru að vinna alla 3 titlana heima fyrir og komast upp úr riðlinum í meistaradeildinni. En fyrsti titilinn er kominn í hús þar sem við unnum meistara meistarana um seinustu helgi. Þetta eru háleit markmið og er mikill spenningur í mannskapnum að fylgja eftir síðasta tímabili.“

Hafa einhverjar breytingar átt sér stað frá síðasta tímabili í herbúðum liðsins?
“Já við misstum 3 leikmenn og fengum 3 aðra í staðinn. Má segja að við séum nokkurnveginn á pari hvað varðar styrkleika miðað við í fyrra.“

Hvert er markmið þitt og liðsins á komandi tímabili?
“Mín persónulegu markmið eru alltaf háleit. Ég ætla mér að halda áfram að bæta mig sem markmann og verða betri með hverri æfingu og hverjum leik. Var mjög sáttur með mína frammistöðu á síðasta tímabili og hélst það í hendur við gengi liðsins. Við vorum til að mynda með 6 af 7 leikmönnum í liði ársins og er planið hjá mér að halda mér í því liði. Svo þegar tímabilið hérna úti er hálfnað tekur við HM í Svíþjóð þannig að það er mörg krefjandi og skemmtileg verkefni framundan. Mitt aðalmarkmið þetta árið er að festa mig í sessi sem einn af 15 bestu markmönnum heims. Það hefur verið markmið frá því ég var lítill er að verða einn af topp 5 í heiminum. Hitti reyndar Claes Hellgren um daginn og sagði hann við mig að ég væri kominn í hóp topp 10 í heiminum og var það mikið búst fyrir mig þar sem að hann er guðfaðir markvörslunnar og var til að mynda valinn besti handknattleikmaður heims árið sem ég fæddist.”

Áttu einhverja sérstaka rútínu á leikdegi?
“Já heldur betur. Er mjög hjátrúafullur og er með fullt af vitleysu í kollinum sem ég þarf að ganga í gegnum á leikdegi. T.d. borða ég alltaf það sama, verð að spila í sömu sokkum og ég hef verið í yfir daginn, hlusta á sömu tónlistina fyrir leiki, vera með tvöfalda slaufu á buxum og skóm í leiknum og margt fleiri. Ég er reyndar að reyna að kötta út eitthvað af þessum hlutum til að verða hreinlega ekki geðveikur.“

Nú munt þú spila í meistaradeildinni í ár, ert þú og liðið klárt í þann slag?
“Já ég held að við séum bara að verða það. Erum í riðli þar sem að allir geta unnið alla og mikil tilhlökkun í mannskapnum að hefja leik í sterkustu deild í heimi.“

Hver er erfiðasti andstæðingurinn sem þú hefur keppt á móti?
“Sem betur fer spila ég sjaldan á móti honum en það er Róbert Gunnarsson. Reyndar get ég stundum átt í erfiðleikum með Einar Hólmgeirsson líka en það er bara vegna þess að hann veit ekki sjálfur hvert hann er að skjóta, hvernig á ég þá að vita það? Síðan situr ennþá í mér einn leikur á móti Stefan Kretzchmar síðan ég var pjakkur. En sem betur fer er hann hættur að spila og er reyndar orðinn einn af mínum umboðsmönnum.“

Félagar á góðri stund

Er deildin sterkari nú en verið hefur? (Í fyrra var t.d. í fyrsta sinn sem svissneskt lið sló út þýskt í Evrópukeppni)
“Deildin hérna er svolítið furðuleg og má segja að hún skiptist niður í  6 mjög sterk lið, 4 miðlungslið og 2 lið sem eru satt best að segja ekkert frábær. Helsta ástæða þess að við unnum deildina svona þægilega í fyrra er líklega vegna þess að við erum með mjög breiðan hóp sem samanstendur af  16 góðum leikmönnum á meðan hin liðin eru flest með um 7 sterka leikmenn. Þetta gerir það að verkum að við erum að klára okkar leiki yfirleitt í seinni hálfleik þegar þreytan er farinn að segja til sín hjá hinum liðunum. Það gerðist ítrekað í fyrra að við vorum með jafnan leik í hálfleik og enduðum svo á því að vinna með 7-10 mörkum. Árið í ár verður hinsvegar töluvert erfiðara vegna þess að hin liðin hafa flest öll styrkt sig og svo er alltaf erfiðara að verja titla en að vinna þá, það vilja jú allir vinna meistaranna.“

Fylgistu eitthvað með íslensku deildinni? Hverjir heldur þú að standi uppi sem Íslandsmeistarar á komandi tímabili?
“Já reyni að fylgjast vel með boltanum heima. Held að í ár verði deildin hrikalega jöfn. Nokkur lið urðu fyrir mikilli blóðtöku og mörg lið með breytt lið og nýja þjálfara. Get ómögulega tippað á meistara svona snemma en þetta verður barátta milli 4-5 liða.“

Ein spurning að lokum, ætlarðu að nota gelið ykkar Loga mikið á þessari leiktíð?
“Ég er nú hræddur um það. Silver er auðvitað stór ástæða þessarar velgengni Kadetten og landsliðsins á síðasta tímabili og eru þetta lið sem geluðu yfir sig í sínum leikjum og lét árangurinn ekki á sér standa hvað varðar medalíur og útlit.“ segir þessi magnaði markmaður að lokum.

Deildin í Sviss byrjar um helgina og verður Björgvin Páll vitanlega í eldlínunni.