Ragnarsmótið kláraðist í dag með þremur leikjum í íþróttahúsinu á Selfossi, þar sem keppt til úrslita. Fyrsti leikur dagsins var á milli Vals og FH, þar sem þau kepptu um fimmta sætið. Leikurinn var æsispennandi alveg undir lokin, þar sem úrslitamarkið kom úr vítakasti á lokasekúndu leiksins. FH sigraði leikinn, 24-23, en FH sigraði Ragnarsmótið í fyrra. Um þriðja sætið börðust HK og Fram, leikurinn fór 38-34, fyrir HK. Bjarki Már Elíasson, leikmaður HK átti stórleik og skoraði 12 mörk í leiknum, Björn Ingi markvörður HK-inga átti einnig góðan leik, en hann varði 16 skot í leiknum. Athygli vakti á að Ramunas Mikalonis, fyrrverandi leikmaður Selfoss, sem lagði skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð dæmdi leikinn með honum Magnúsi Kára.
Úrslitaleikur mótsins var á milli heimamanna á Selfossi gegn Haukum. Leikurinn byrjaði rólega en staðan var 1-1 þegar 4 mínútur voru liðnar af leiknum, menn voru í miklum barningi flest allan leikinn en þegar 11 mínútur voru liðnar af leiknum var fimmta gula spjaldið farið á loft. Staðan var þá 5-5 og Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður Hauka búinn að verja strax sex skot Selfyssinga. Stuttu eftir þetta kom Gunnar Ingi Jónsson, hornamaður Selfyssinga, liði sínu á bragðið með tveim mörkum í röð og staðan orðinn 7-5 fyrir heimamönnum. Haukar misstu svo Freyr Brynjarsson útaf í 2 mínútur, en þegar hann kom inn á aftur skoraði hann tvö mörk í röð og minnkaði muninn í 8-7. Eftir þetta var leikurinn frekar jafn, liðin spiluðu góðan varnarleik og markmenn liðanna vörðu vel, staðan í hálfleik 14-14 og ljóst að þetta yrði hörkuleikur fyrir áhorfendur. Fjórar tvær mínútur voru gefnar í fyrri hálfleik á hvort lið.
Strax á 1 mínútu síðari hálfleiks var línumaður Selfyssinga, Ómar Helgason, rekinn útaf eftir að hafa fengið á sig sína þriðju brottvísun. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan jöfn, 19-19. Fjórum mínútum síðar voru Selfyssingar óvænt komnir með fjögurra marka forskot, 24-20, eftir góða syrpu þar sem Einar Héðinsson skoraði tvö mörk í röð. Haukar tóku leikhlé í kjölfarið af þessu, til að róa leikinn niður. Á 16. mínútu fékk Atli Kristinsson, leikmaður Selfoss, að líta á rauða spjaldið eftir sína þriðju brottvísun. Atli var búinn að vera sjóðheitur, en hann var kominn með 8 mörk þegar hann var rekinn útaf. Selfyssingar héldu forskotinu þangað til á 27. mínútu, þegar Haukar minnkuðu muninn í tvö mörk, 30-28. Þegar ein og hálf mínúta var eftir fékk Þórður Rafn úr Haukum 2 mínútur, svo Haukar léku einum færri í lokin. Þegar 30 sekúndur voru eftir fengu Haukar víti, sem Einar Örn Jónsson tók og skoraði örugglega og minnkaði muninn í eitt mark. Selfyssingar fengu svo víti þegar 17 sekúndur voru eftir, og skoraði Ragnar Jóhannsson örugglega og tryggði Selfoss sigur, 32-30.
Birkir Fannar Bragason markvörður Selfyssinga var að von sáttur með sigurinn en hann varði 14 skot í leiknum. “Ég hefði viljað verja meira, en þetta er bara það sem koma skal, við setjum á þá stefnu að við förum í hvern leik í vetur til þess að vinna, það er engin spurning,” sagði Birkir í lok leiks. Birkir var valinn markvörður mótsins.
Selfoss voru að sigra Ragnarsmótið í fyrsta sinn síðan 1990.
Mörk Selfoss: Guðjón Finnur Drengsson 10, Atli Kristinsson 8, Ragnar Jóhannsson 6, Gunnar Ingi Jónsson 3, Einar Héðinsson 3, Baldur Þór Elísson 1, Helgi Héðinsson 1, Matthías Halldórsson 1.
Birkir Fannar Bragason varði 14 skot og Helgi Hlynsson 3.
Mörk Hauka: Björgvin Hólmgeirsson 6, Gísli Jón Þórisson 4, Heimir Óli Heimisson 4, Þórður Rafn Guðmundsson 4, Guðmundur Árni Ólafsson 3, Sveinn Þorgeirsson 3, Einar Örn Jónsson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Freyr Brynjarsson 2.
Birkir Ívar Guðmundsson varði 9 skot og Aron Rafn Eðvaldsson 6
Verðlaun:
Markvörður mótsins: Birkir Fannar Bragason, Selfoss.
Varnamaður mótsins: Freyr Brynjarson, Haukar.
Sóknamaður mótsins: Bjarki Már Elísson, HK.
Markahæsti leikmaður: Bjarki Már Elísson, 26 mörk, HK.
Besti leikmaður mótsins: Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK.





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook