Úrslitin á Ragnarsmótinu ráðast í dag í handknattleik karla á Selfossi. Selfoss vann FH í gær, 26-25, í lokaumferðinni í gær. Ragnar Jóhannsson skoraði 7 mörk fyrir Selfyssinga og Guðjón Finnur Drengsson 6. Í liði FH var Hermann Björnsson markahæstur með 8 mörk. Í hinum leiknum sem fór fram í gær sigraði Fram lið Vals, 29-25. Anton Rúnarsson var markahæstur í liði Vals með 7 mörk og hjá Fram var Einar Rafn Eiðsson með 8 mörk.
Selfoss og Haukar leika til úrslita á mótinu í dag, en bæði lið eru taplaus eftir riðlakeppnina. Fram og HK keppast um þriðja sætið en áður klást Valur og FH um fimmta sætið. Allir leikirnir fara fram í íþróttahúsinu Vallaskóla á Selfossi. Leikurinn um 5. sætið er kl. 12:00. Leikurinn um 3. sætið er kl. 14:00 og úrslitaleikurinn er kl. 16:00.
Hægt verður að fylgjast með leikjum dagsins á sporttv.is




Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook