Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna unnu í kvöld nokkuð stóran og sannfærandi sigur á Iuventa frá Slóvakíu í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð EHF-bikarkeppni kvenna, 26-21. Valur hafði sjö marka forystu í hálfleik, 14-7, og hafði sannast sagna talsverða yfirburði í leiknum, en Iuventa skoraði fjögur síðustu mörkin í leiknum. Síðari leikur liðanna fer fram ytra á laugardaginn kemur.
Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik og jafnvel að slóvaska liðið ætti að standa Hlíðarendameyjum skrefinu framar, en annað kom á daginn. Valsstúlkur slógu öll vöpn úr höndum gestanna með því að spila sína viðfrægu 3-3 vörn og Guðný Jenný Ásmundsdóttir var í hörkustuði í markinu. Valur skoraði þrjú fyrstu mörkin og máttleysisleg mótstaða virtist koma þeim svolítíð á óvart. Um miðjan hálfleikinn var forystan orðin átta mörk, 10-2, og svo virtist sem leikmenn Iuventa hefðu sumir hverjir kynnst íþróttinni í síðustu viku, gestirnir settu boltann undantekningalítið í gólfið, höfðu greininlega æft yfirhandarfintuna ágætlega og beittu henni óspart án sýnilegs árangurs. Í liðinu eru reyndar ágætir leikmenn, leikstjórnandinn Yuliya Bakhyrieva kann ýmislegt fyrir sér og þær Alzbeta Pollakova og Lucia Tobiasova myndu spjara sig vel í sterkari liðum. Upp úr miðjum fyrri hálfleiknum tóku Iuventa-stúlkur upp á því að breyta vörninni sinni úr 6-0 í 5-1 og það sló Valsliðið svolítið út af laginu. Sóknarleikurinn varð stirðbusalegur, það vantaði að taka af skarið og hugsanlega kom þarna í ljós ákveðinn veikleiki í liði Íslandsmeistaranna, þ.e. staða leikstjórnand og leiðtoga. Valsstúlkur höfðu þó undirtökin áfram, lifðu svolítið á einstaklingsframtakinu til loka fyrri hálfleiks og höfðu sjö marka forystu þegar flautað var til leikhlés, 14-7.
Iuventa skoraði fyrsta markið í síðari hálfleik og tók til við að mása og blása, en Valsstúlkur stóðu fastar á sínu og vel það. Þær náðu níu marka forystu um miðjan síðari hálfleikinn, 20-11 og 21-12, og spurningin var í raun aðeins orðin sú hversu stór sigurinn yrði. Katrín Andrésdóttir, sem tilkynnti undir lok síðustu leiktíðar að hún myndi leggja skóna á hilluna vegna bakmeiðsla, kom inn á síðari hálfleik, en hún ku ætla að spila Evrópuleikina með Val áður en hún lætur gott heita. Valsstúlkur voru einfaldlega sterkari á flestum sviðum, þótt vissulega hafi leikur Iuventa farið batnandi eftir því sem á leið. Heimaliðið vék frá 3-3 vörninni í síðari hálfleik, lék meira og minna 5-1 í síðari hálfleik, og gerði það vel. Meistararnir virðast koma vel undan sumri, eru í ágætu formi og liðið er orðið rútínerað og vel spilandi. Hrafnhildur og Ágústa Edda voru ansi áberandi í sóknarleiknum og skoruðu grimmt, Íris Ásta nýtti færin sín vel og Anna Úrsúla og Hildigunnur sýndu enga miskunn í vörninni. Enginn lék þó betur en Guðný Jenný Ásmundsdóttir í markinu, en hún tók að sér það verðuga verkefni að leysa Berglindi Írisi Hansdóttur af hólmi á milli stanganna. Guðný Jenný varði eins og berserkur í leiknum, úr öllum mögulegum og ómögulegum færum og miðað við frammistöðu kvöldsins eru áhyggjur Valsfólks af markmannsskiptum nánast óþarfar.
Lokatölur í Vodafone-höllinni urðu 26-21 og sigurinn var síst of stór. Iuventa skoraði fjögur síðustu mörkin í leiknum, sem var algjör óþarfi, en miðað við það sem gestirnir sýndu í þessum leik ætti farseðillinn í aðra umferð að vera kominn í póst. Þó verður að telja líklegt að slóvaska liðið sýni aðra og betri takta á heimavelli sínum um næstu helgi.
Tölfræði leiksins:
Valur:
Mörk:
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 8 (4 víti)
Ágústa Edda Björnsdóttir 6
Íris Ásta Pétursdóttir 5
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3
Rebekka Rut Skúladóttir 2
Katrín Andrésdóttir 1
Kristín Guðmundsdóttir 1
Varin skot:
Guðný Jenný Ásmundsdóttir 25 (3 víti)
Iuventa:
Mörk:
Lucia Tobiasova 5
Terezia Szollosiova 4
Alzbeta Pollakova 3
Anna Obsatnikova 3
Tetyana Tregubova 2
Livia Kalaninova 1
Zuzana Holla 1
Yuliya Bakhyrieva 1
Varin skot:
Ingrid Kudrocova 8 (1 víti)
Lucia Gubikova 3
Myndir: Hilmar Þór





Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook