Tveir leikir fóru fram í dag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Íslendingaliðið Hannover Burgdorf vann 27-24 sigur á Melsungen en Hannover leiddi 14-13 í hálfleik.
Hannes Jón Jónsson, fyrirliði Hannover, skoraði eitt mark í leiknum en þeir Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoruðu tvö mörk hvor. Aron Kristjánsson er þjálfari liðsins.
Þá vann Fusche Berlin 25-22 sigur á Lubebecke en staðan var 12-12 er flautað var til hálfleiks. Þórir Ólafsson skoraði 7 mörk fyrir Lubbecke í leiknum en hann var markahæstur í sínu liði. Rúnar Kárason komst ekki á blað í leiknum en Alexander Petterson skoraði tvö marka Fusche Berlin.
Dagur Sigurðsson er þjálfari Fusche Berlin.






Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook