Sunnudagur, 5. september 2010 | Snorri Sturluson | snorri@sport.is

Valsstúlkur hefja leik í EHF-bikarnum í kvöld | Í beinni á Sport.is

Mynd: Hilmar Þór

Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna hefja leik í EHF-bikarkeppninni í handknattleik í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda kl. 20  í kvöld.  Mótherjinn í þessari 1.umferð keppninnar er Iuventa frá Slóvakíu og fer síðari leikur liðanna fram í Michalovce í Slóvakíu laugardaginn 11.september.

Iuventa varð í sjötta sæti slóvensku deildarinnar á síðustu leiktíð, en deildin samanstendur af liðum frá Slóvakíu og Tékklandi og telst býsna sterk.  Iuventa telst þriðja besta kvennalið Slóvakíu og hefur náð ágætum árangri á Evrópumótunum og komst m.a. í 16-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa fyrir tveimur árum.

Iuventa hefur einu sinni áður mætt íslensku liði í Evrópukeppni, mætti Stjörnunni í forkeppni Meistaradeildarinnar árið 2006, en þá var leikin riðlakeppni í Ungverjalandi.

Valsstúlkur hafa sem kunnugt verið í hópi bestu handboltaliða Íslands undanfarin ár og hömpuðu langþráðum Íslandsmeistaratitli á síðustu leiktíð.  Valur náði sínum besta árangri á Evrópumótunum árið 2006, en þá komst liðið í undanúrslit Áskorendakeppni Evrópu.  Mótherjinn þar var Constanta frá Rúmeníu, sem skartaði m.a. Alinu Tamasan, sem í dag leikur með Stjörnunni.

Sigurvegarinn í rimmu Vals og Iuventa mætir Vfl Oldenburg frá Þýskalandi í 2.umferð EHF-bikarkeppninnar.

Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sport.is í samstarfi við Sporttv.is. Frétt með leiknum í kemur stuttu fyrir leik.