HSÍ hefur látið hanna og framleiða handboltasmáforrit eða „app“ fyrir snjallsíma. Með þessu nýja appi má með einföldum og þægilegum hætti nálgast handboltatíðindi helstu fréttamiðla landsins, úrslit leikja og stöðu í deildum. Appið, sem fyrirtækið Stokkur á veg og vanda að, er fáanlegt bæði fyrir Android-síma og iPhone og er nú þegar komið á opna markaði snjallsímanotenda, Android Market og App Store. Niðurhal er einfalt og fljótlegt og krefst lítillar sem engrar tæknikunnáttu.
Nýja handbolta-appið streymir handboltafréttir frá Morgunblaðinu, Vísi.is og Sport.is, en auk þess birtast þar úrslit leikja í N1-deild karla, N1-deild kvenna, 1.deild karla og Eimskips-bikarnum sem og staðan í þessum þremur deildum. Úrslit og staða uppfærast hratt og örugglega.
Varla þarf að taka það fram að handbolta-appið er fríefni, notendur snjallsíma borga ekki sérstaklega fyrir niðurhal þess og notkun.



Gerumst félagar
RSS Twitter Facebook